Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Page 91

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Page 91
mannanna af glöggsýni en ferðalangur í framandi landi. Hann hefur verið sviptur öllum merkimiðum öðrum en upprunanum og ef til vill fjárhags- stöðu og gengur þannig til fundar við þjóðerni sitt um leið og hann glöggvar sig á nýju samfélagi. Ferðalangnum lætur því vel að lýsa framandlega landinu á forsendum heimalands síns, eins og Stephan G. kvað: „Þó þú langförull legðir sérhvert land undir fót, bera hugur og hjarta samt þíns heimalands mót“. Reynsla og athuganir ferðalangsins verða að mestu leyti háðar þeim menningarviðmiðum sem hann hefur ffá heimalandi sínu eða öðrum þeim löndum sem hann hefur komist í kynni við. Óumflýjanlegir menningarlega skilyrtir/ordómar, jafnt meðvitaðir sem ómeðvitaðir, vilja því byrgja honum sýn á nýja samfélagið og villa um fýrir honum, því eins og Edward Said lýsir í bók sinni Orientalism hefur engum tekist að kippa fræðimanninum út úr því samhengi sem hann er sprottinn úr.3 Því miður, mun margur mann- fræðingurinn kvarta, getur forsnið gestsins orðið til þess að hann „ljúgi“ um samfélagið sem hann lýsir. „Útlendíngur sér fýrirbrigði manna ljósast, en hann dregur rángar ályktanir því hann þekkir ekki orsakir fyrirbrigðanna,“ skrifar Halldór Laxness í Afmenníngarástandi (s.l 1). Sigurður Nordal tekur í sama streng í íslenskri menningu: „Ef vér viljum fá greinagóð skil á einkenn- um annarra þjóða, [... ] mun niðurstaðan oft verða sú, að erlendir menn hafi séð þar margt og skihð skarplegar en þær sjálfar.“ (32) Halldór Laxness bendir hins vegar einnig á að heimamenn séu „oft miður hæfir til að skynja heild þá, sem þeir hrærast meðal, í ólitaðri birtu, það er að segja hlutdrægn- islaust.“ (11) Er þá einhver fær um að komast að innsta kjarna hlutanna? Samkvæmt ofanskráðu gæti það verið sá sem dvelur á landinu hálft sem gestur og neytir „í senn auga gestsins og kunnugleik[s] heimamannsins“, eins og Laxness orðaði það. Það getur verið innflytjandi eða nýr íbúi, sá sem hefur tveggja heima sýn, það er Janus, guðinn með andlitin tvö, annað gamalt, hitt ungt, og snúa í sína áttina hvort. Sýn hans er ávallt fersk og hann nýtur þess að vera „þar sem víðsýnið skín“. Er það furða þótt höfundar með þess konar eiginleika þyki einna nýstárlegastir og áleitnastir á tímum þjóðadeiglu. Tvísýni Að hafa sýn til tveggja menningarheima er að sumu leyti sambærilegt við að vera hvort tveggja í senn: barn og fullorðinn, innlendur og útlendur, jafnvel maður og kona. Þegar andstæður sem þessar ganga í gagnverkandi samband getur útkoman orðið nýtt merkingarsvið, fersk sýn og ný vídd, jafnvel barn í brók. Þar með er komin leið út úr tvenndarkerfi merkingarinnar, þar er TMM 1995:3 89
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.