Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Page 103

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1995, Page 103
Lýðræði sjónarhorna Ástralska skáldkonan Elizabeth Jolley hefur sagt að nú til dags séum við öll innflytjendur. Maður þurfi ekki að hvarfla langt frá fæðingarstað sínum til að vera kominn í framandlegan heim.21 Edward Said orðar svipaða hugsun svolítið öðruvísi í nýjustu bók sinni, Culture and Imperialism: Enginn sé lengur eitt fyrirbæri. Mannlífið snúist ekki lengur um það að vera bara indverskur, eða bara múslimi eða bara kona, svo dæmi séu tekin. Heims- valdastefnan hafi hrært allt í einn graut í heiminum. Lífsbaráttan hverfist í raun um tengslin milli hluta, ekki sé hægt að svipta raunveruleikann „hinum röddunum sem byggi garðinn“, segir hann og vitnar til T.S. Eliots.22 í orðum Saids felst að engin þjóðmenning sé alfarið einsleit eða einhlít heldur marg- radda. í greininni „Rödd textans, rómur túlkandans“ í Skírni vorið 1991 fjallar Torfi H. Tulinius um kenningar Tzvetans Todorovs um margröddun. Þar segir meðal annars: „Höfundurinn hefur enga beina málpípu í verkinu, heldur er hann að leita að þeim sannleika sem liggur á milli þessara radda, ef svo má að orði komast, einhvers konar heildarsýn sem verður til eftir að búið er að innbyrða þær allar.“ Síðan tekur Torfi fram að sannleikurinn liggi ekki hjá einum heldur megi nálgast hann „með því að tefla saman mörgum röddum, mörgum sjónarhornum.“23 Jafnvel þótt höfundur virðist ekki vera að skipta sér milli menningar- svæða, eins og Kazuo Ishiguro, sem virðist vera að fást við það sem breskast er í Dreggjum dagsins, kemur tvísýnin að góðum notum. Snæbjörn Arn- grímsson bendir á það í grein í Teningi hvernig Ishiguro notar sitt japanska innsæi einmitt til að sundurgreina „þá sekt og skömm sem er innbyggð í þjónustulundina, hollustuna og í hefðina“ í Bretlandi, en þau viðfangsefni rekur Snæbjörn til áhuga höfundarins á örlögum japönsku þjóðarinnar eftir heimsstyrjöld.24 Sambærileg sýn er að verki hjá Jung Chang í bók hennar Villtum svönum. Þar fjallar hún á opinskáan og áhrifamikinn hátt um Kína Maós. Útlegð hennar á Vesturlöndum gerir henni kleift að brjótast undan boðum og bönnum alþýðulýðveldisins og fjalla um áhrif stjórnarstefnu formannsins af hreinskilni sem áður hefði flokkast undir helgispjöll og gerir það ef til vill enn hjá mörgum. Það verður því ekki dregið úr vægi þess að mismunandi raddir fái að hljóma og takast á ef „allur“ sannleikurinn um menninguna á að ná upp á yfirborðið. Til að fá sem trúverðugasta mynd af einhverju, að teknu tilliti til takmarkana á sannleiksgildi skráningarinnar, hlýtur þar af leiðandi að vera best að fá lýsingar frá sem flestum sjónarhornum til að greina heildarmynd- ina. Við þurfum að geta gengið í kringum hlutinn, við þurfum lýðræði sjónarhornanna. Sú tíð virðist vera liðin að hægt sé að tala fyrir hönd TMM 1995:3 101
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.