Skírnir - 01.09.1987, Page 113
SKÍRNIR TILVISTARSTEFNAN OG NORDAL
319
sannleika sem muni gjöra alla menn frjálsa svo framarlega sem þeir
vilji taka á móti honum. Heimspekin væri prédikun. Tilvistarheim-
spekingar eru margoft sakaðir um þetta - enda eru viðfangsefni
þeirra iðulega á mörkum trúar.
Það er því engin tilviljun að Sigurður Nordal gerir ekki annað í
fyrsta erindi sínu en að ræða um þetta atriði í von um að koma
áheyrendum sínum í skilning um hvers konar prédikun það er sem
hann er að flytja. „Já, það er lang bezt að gangast við því eins og það
er“, segir Sigurður: „Þessi erindi eiga að vera eins konar prédikan-
ir.“ (LD, s. 4)
Nú skulum við líta á það hvernig Sigurður fjallar um prédikanir
og hvernig erindi hans geta talist prédikanir og hvernig þau greina
sig frá venjulegum prédikunum. Sigurður segir að prédikarinn
mæti kæruleysi, efasemdum og aðkasti.
- Prédikarinn hvetur til sinnaskipta og yfirbóta og er þannig
með afskiptasemi sem fólk mætir iðulega með kæruleysi.
- Prédikarinn heldur fram ósönnuðum skoðunum varðandi
efni sem skipta okkur oft miklu máli og hér mætir hann efasemd-
um.
- Prédikarinn vill hafa áhrif á menn og beitir því í ræðu sinni
málskrúði til að sannfæra fólk, og hann otar þannig sjálfum sér
fram, gerir sjálfan sig merkilegan, er jafnvel hrokafullur. Hann er
sjálfur í því sem hann segir, ef svo má komast að orði. (Sókrates er
skýrasta dæmið um þetta.) Og hér mætir prédikarinn aðkasti.
Hvað greinir nú heimspekinginn frá annars konar prédikurum?
Hér er rétt að benda á að þrír hópar manna virðast öðrum fremur
leggja fyrir sig prédikanir. Það eru prestar, kennimenn og trúboð-
ar. Presturinn prédikar vegna starfsskyldu og hann mætir iðulega
kæruleysi. Kennimaðurinn prédikar vegna þekkingar sinnar Og
hann mætir iðulega efasemdum. Trúboðinn prédikar vegna
köllunar sinnar og hann mætir iðulega aðkasti. Heimspekingurinn
er hins vegar hvorki prestur, kennimaður né trúboði. Prestar,
kennimenn og trúboðar ganga að sannleikanum vísum: vegna
starfsskyldu, fræðilegrar ástundunar eða opinberunar. Heimspek-
ingurinn prédikar ekki vegna starfsskyldu eða vegna þess að hann
hafi öðlast fræðiiegan skilning á sannleikanum; þaðan af síður
vegna þess að sannleikurinn hafi opinberast honum. Þess vegna