Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.09.1987, Side 206

Skírnir - 01.09.1987, Side 206
412 PALL VALSSON SKÍRNIR Fram að þeim tíma lögðu fræðimenn, sem sinntu bókmenntum, fyrst og fremst stund á textafræði enda var sannarlega mikið starf óunnið á þeim vettvangi. Aðrar hliðar bókmenntanna, t. d. rannsóknir á frásagnarfræði, formgerð og hugmyndafræði þeirra lágu að miklu leyti óbættar hjá garði, enda sjálfsagt að fallast á hárþeitta röksemd fílólóga: Aður en að slíkum hlutum kemur þarf að hafa réttan texta. Fræðilegar athuganir á þeim hliðum bókmenntanna sem að ofan voru nefndar styðjast því ekki við ríka hefð og sú staðreynd er ástæða þess hve fátæk við erum að ritum um bókmenntir okkar, um einstök skáld og skáld- skap og á það jafnvel við um höfuðskáld. Það er ekki margt sem bendir til þess að veruleg breyting sé að verða á í þessu efni; enn geta menn talið á fingrum sér þær bækur sem koma út um skáldskap. Hins vegar liggja nú a. m. k. margar ritgerðir á söfnum sem eiga erindi við aðra en innvígða. Það þarf líklega ekki að hafa mörg orð um hversu brýnt er að úr þessu ástandi rætist. í góðum fræðibókum er fólginn tengiliður við fólkið í landinu; mikilvægur hlekkur í því að gera bókmenntirnar nákomnar alþýðunni sem auðvitað hlýtur að skipta sköpum fyrir framtíð íslenskra bókmennta. Ein ritröð í þessa veru hefur þó komið út í hálfa öld. Fyrst fræðilegra rit- gerða undir samheitinu Studia Islandica var ritgerð Einars Olafs Sveinsson- ar um Sagnaritun Oddaverja árið 1937. Að vísu hefur útgáfa þessara bóka verið misjafnlega kröftug og stundum hafa orðið löng hlé á útkomu þeirra eða þá engu hefur verið líkara en að bókaútgáfa sú sem að þeim stendur vilji stunda sína starfsemi í kyrrþey og forðast fyrir alla muni að minna á fjöl- margar ágætar bækur í þessari seríu. Þó hefur trúlega aldrei verið brýnna en nú að tryggja viðgang ritraðar sem þessarar með myndarlegum hætti og ganga vasklega til verks. II. Bók Matthíasar Viðars Sæmundssonar, Ást og útlegð, er mikil að vöxtum og þar er vitanlega miklu fleira rætt en nokkur tök eru að geta um í umsögn sem þessari. Eins og fram kemur í undirtitli er Matthías að kanna frumdaga íslensku skáldsögunnar; - árin frá 1850 til 1920 þegar hvörf eru að verða í íslenskum bókmenntum. Þetta er ekki lítið verkefni og tekur þó Matthías til athugunar fleiri texta frá þessu tímabili en menn hafa til þessa talið til al- varlegra bókmennta. Af þessum sökum er augljóst að höfundur verður að búa sér til einhvern ramma, trausta afmörkun þannig að honum auðnist að gera efninu viðunandi skil. Þennan vanda leysir Matthías með því að skoða bókmenntir þessa tíma undir mjög fastmótuðu sjónarhorni. I sérhverjum texta einblínir hann á ástina og hvernig hún rekst á við samfélagsboð, með andstæðurnar ein- staklingsþörf - samfélagsboð efst í huga. Matthías gengur í þessu efni í smiðju til Sigmunds Freud; andstæður hans eru grundvallaðar á kenningu Freuds um andstæður veruleikalögmáls og vellíðunarlögmáls sem hann lýsir m. a. svo:
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.