Skírnir

Volume

Skírnir - 01.09.1987, Page 178

Skírnir - 01.09.1987, Page 178
384 HELGI SKÚLI KJARTANSSON SKIRNIR og auðskilinn, vegna þess að hann hefur ekki of mikið undir; drepur að vísu á margt úr heimspeki- og vísindasögu, en einbeitir sér að einu, hinni klass- ísku heimsmynd, forsendum hennar og gagnrýni Kóperníkusar á hana. Eg held að svona bók sé fróðlegri og meira menntandi en t. d. yfirlitsrit um vísindasögu með jafnri áherslu á fjölda atriða. A eftir meginmálinu koma sex stuttir viðaukar. Hinn síðasti er syrpa biblíutilvitnana (og ætti kannski betur heima í seinna bindinu), en fimm þeir fyrri fjalla um tæknileg atriði sem höfundi hefur þótt of þung til að fella í meginmálið. Þó er að vissu leyti skaði að hafa þessar lýsingar ekki á sínum stað í samhengi bókarinnar. Þá koma tilvísunargreinar aftanmáls, röskar sex smáleturssíður, aðallega heimildavísanir. Kerfisbundið er vísað til heimilda að orðréttum tilvitnun- um (einnig að myndum, en það er gert í hverjum myndatexta, hefur þó gleymst á bls. 152 og 182), líka að öðrum efnisatriðum þegar sérstök ástæða er til. Stundum fylgja athugasemdir frá eigin brjósti höfundar,4 og er alltaf hætt við að slíkt fari fram hjá lesendum þegar það er grafið í aftanmáli. Síðan fylgir heimildaskrá, geysilöng og ekki einskorðuð við tilvitnuð rit; sérstaklega er gagnlegt hve mikið hér er tilgreint af ritum á íslensku. Enn kemur smáletursbálkur: skýringar helstu fræðiorða á rúmum sex síðum, og eru það meira en einberar orðskýringar, því að sumar eru með „alfræðilegu ívafi“, þ. e. upplýsingum um fyrirbærin. Þetta er mjög gagn- legt og vel til vandað, þótt sjálfsagt megi deila um einstaka óvenjuleg orð sem hér er reynt að koma á framfæri („stærðarþrep“ í stað stærðargrádu, svo að dæmi sé tekið, og er nýyrðið að sönnu rökréttara). Og enn skrár: töfluskrá, myndaskrá og mjög rækileg nafna- og atriðis- orðaskrá (sem ég er búinn að nota talsvert án þess að hún hafi brugðist mér í neinu). Allt þetta aftanmál, tilvísanir og skrár (nærri 40 síður af alls um 320 síð- um bókarinnar) tilheyrir vönduðum heimanbúnaði fræðirits og ekki síður þótt ætlað sé almenningi. Og raunar á það við um alla útgerð bókarinnar að hún er hin vandaðasta, bæði af hendi höfundar og forlags. Myndskreyting er t. d. töluverð, einkum teiknaðar skýringarmyndir sem koma sér víða mjög vel til glöggvunar, en einnig myndir til upplífgunar. Fáeinar myndir eru í litum, en auk þess eru kort og skýringarmyndir víða prentuð í bláum lit ásamt svörtum og fer vel á því. Efnisatriði eru víða dregin saman í töflur, handhægar til yfirlits. I spássíutextum er vísað á aðalatriði meginmálsins, og kemur það sér vel þegar blaðað er í bókinni fram og aftur. Einnig er bún- ingsbót að líflegum millifyrirsögnum. Svo spillir ekki að umbrot er vandað og prófarkalestur góður.5 Um búning bókar varðar þó langsamlega mestu hvernig höfundur stílar textann. Þar hefur Þorsteinn lagt sig verulega fram, enda er það, segir hann í formála (bls. 8), „einn tilgangur þessarar bókar [...] að láta reyna á það, hversu beita megi íslensku nútímamáli við efni af þessum toga“. Hann
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.