Skírnir

Volume

Skírnir - 01.09.1987, Page 183

Skírnir - 01.09.1987, Page 183
SKÍRNIR RITDÓMAR 389 Grámosinn er myndræn saga, en hún er líka full af tónlist. Bæði eru fjöl- margar samlíkingar sóttar í heim tónlistarinnar og auk þess berast alls kon- ar tónar, söngvar og hvers kyns hljóð að eyrum frá upphafi til enda. Um leið og hugsun Asmundar er líkt við mynd er hún „sívakinn tónn í víðreist- um hljómflutningi“ (14). Og svar Þórðar, samferðamanns Ásmundar, „var á dýpri nótum, næstum selló“ (123). Á ferðalaginu að austan leggst Ás- mundur í grasið á árbakka og hlustar á vatnsniðinn sem tók völdin, og þandi sig um allt sviðið margómandi og hljóm- andi svo ekkert var annað lengur en tónastef með endalausum flétt- um og tilbrigðum, og hækkaði og breiddist um allt, hlóð allar æðar, ómaði yfir og undir, og duldir rómar skýrðust og tóku að kveða að; raddir sem ýmist voru grisjaðar, ellegar margvafðar hljómbrigðum, og fleytt fram æ voldugri í þessum allsherjar straumi. . . (249) Meðan ferðalangarnir eru enn fjarri staðnum þar sem tíðindin gerast birtast lesandanum elskendurnir tveir, hálfsystkinin, ein á ástarfundi, en til skiptist við það og ferðalagið er skotið inn brotum úr sögu Jóns morðingja. Þessi Jón er ákærður og játar að hafa drepið unnustu sína þungaða. Þetta er óhugnanlegt mál, en þegar aðdragandi morðsins skýrist varpar það nokkru ljósi á hitt málið og þó kannski ekki síst aldarfarið, aðstæðurnar sem áttu þátt í að menn gripu til slíkra voðaverka. Um miðbik sögunnar eru ferðalangarnir komnir á áfangastað og um það leyti hverfur mál Jóns úr sögunni. Þá hefjast réttarhöldin á prestssetrinu, þungamiðja sögunnar. Eiginleg hvörf verða þó ekki þegar játningin er gerð heldur í köflunum „Opið“ og „Hvað felst í einu ópi?“. Þeir mynda há- punkt sögunnar og í næsta kafla á eftir „Samsæti um nótt“ er lýst afar vel orðlausri skelfingu sýslumannsins. Það á einkennilega vel við að láta prest- inn og sýslumanninn þegja saman og fara svo að lesa fyrst úr Jobsbók og síðan texta Prédikarans: „Og mundu eftir skapara þínum“ (213). Á eftir fara mjög dapurlegir kaflar, málið liggur ljóst fyrir, barnslíkið finnst og jarðarför Sólveigar fer fram. Það dregur úr spennu en tónarnir eru þungir og daprir. Þá er í miðri jarðarför skotið inn kafla þar sem farið er aft- ur í tímann með mjög átakanlegum kafla og sársaukafullum sem heitir „Nýtt líf“ og lýsir af hryllilegri nákvæmni barnfæðingu og barnsmorði. Mestur hluti sögunnar er sagður frá sjónarhorni Ásmundar. Mál Jóns morðingja birtast í formi réttarskjala sem Ásmundur hefur undir höndum og inn í það fléttast hugleiðingar hans um þetta mál. En stundum skiptir um sjónarhorn og sýnt er í huga prestsins, konu hans, Sólveigar og bróður hennar. Nokkrir kaflar gerast algjörlega í huga Sólveigar, ástarfundur, nauðgun og fæðing. Þessir kaflar sem sýna í hug hálfsystkinanna eiga stór- an þátt í að skýra persónur þeirra, enda vakna í hugum þeirra sárar minningar og reynsla sem erfitt er að lifa með. Lýsingin á Sæmundi Frið- geiri, en það heitir bróðirinn, þegar hann er „aleinn, lítill og kaldur; og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.