Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2017, Qupperneq 26
25
ar til þess að mistakast.33 Ástæða þess að helsta aðferð sálgreinandans að
hlusta ítrekað á skjólstæðinga sína tala er sú að það sem hefur ekki verið
tjáð í hverjum og einum er einstaklingsbundið. Samkvæmt kenningum
sálgreiningar mun samfélagið alltaf vefjast fyrir sjálfsverunni, jafnvel þótt
fleira eigi eftir að leyfast en nú á sviði kynferðismála. Hennar mun alltaf
bíða það verkefni að finna sér stað innan samfélagsins, í því kraðaki sjálfs-
fyrirmynda sem tilheyra bæði þeim réttlátu og þeim ranglátu, og í besta
falli mun hún skapa eigin lífi tilgang sem helgast ekki af því að þóknast
öðrum.34
Að vera eða vera ekki fallusinn
Eins og ljóst má vera af umfjölluninni hér að framan hættir sálgreiningu
sem byggir á kerfisbundinni hugsun til þess að rekast harkalega á veru-
leikann, sem er oft flóknari en sá sem kenningin gefur mynd af. Sá sál-
greinandi sem er líklega þekktastur fyrir að setja fram illskiljanleg kerfi
er Jacques Lacan, en hann var alræmdur fyrir að búa til stærðfræðijöfnur
fyrir allt milli himins og jarðar, þar á meðal kynjamismun.35 Það er ýmis-
legt hins egin við kenningu hans um kynjamismun, eins og sjá má á þeirri
grundvallarniðurstöðu hennar að kynin tvö og sambandið milli þeirra
gangi ekki upp, en Butler leggur einmitt út af henni í umfjöllun sinni um
sálgreiningu í Kynusla.36 Kynjamismunarjafna Lacans býður einnig upp á
möguleika á því að ræða kyn óháð líffræðilegu kyni.37 Þegar rýnt er nánar
í formúluna koma þó í ljós ýmis vandamál sem hafa vafist fyrir þeim sem
leita leiða til að sætta sálgreiningu og hinsegin fræði – og þótt víðar væri
leitað.
33 Í bæklingi Samtakanna ’78, „Hvað er Hinsegin“, kemur fram að sís-kynjun vísar til
fólks „sem býr yfir kynvitund og/eða kyneinkennum sem samræmast kyninu sem
því var úthlutað við fæðingu (er hvorki trans né intersex).“
34 Því skal þó haldið til haga að sá tilgangur gæti allt eins verið að umbylta samfélaginu
og viðmiðum þess.
35 Finna má jöfnu Lacans um kynjamismun í útgefnum fyrirlestrum hans um kvenlega
kynverund, takmörk ástar og þekkingar frá 1972–1973, sjá Jacques Lacan, The
Seminar of Jacques Lacan: Book XX. On Feminine Sexuality, The Limits of Love and
Knowledge, 1972–1973, ritstj. Jacques-Alain Miller, þýð. Bruce Fink, New York &
London: W.W. Norton & Company, 1998, bls. 73.
36 Judith Butler, Gender Trouble, bls. 62.
37 Patricia Gherovici, Please Select Your Gender: From the Invention of Hysteria to the
Democratizing of Transgenderism, New York & London: Routledge, 2010, bls. 20.
AF USLA OG ÁREKSTRUM