Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2017, Blaðsíða 162

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2017, Blaðsíða 162
161 DAUðINN, RÉTTLÆTIð OG GUð HJÁ FORNGRIKKJUM Hér bíða þrenns konar örlög hinna dauðu. Hinum slæmu er refsað vegna illverka sinna í lifanda lífi, þó að Pindar kunni að hafa átt við að refsing þeirra væri dauðinn.45 Hinir góðu lifa þjáningarlausu lífi hjá guðunum. Líta má á þessa tvo hópa sem framhald af hópunum tveimur í Hadesarheimi Hómers. Alltént er um hefðbundna hugmynd að ræða. En Pindar bætir við voninni um algera hamingju þeirra sem verðskulda, hjá hetjum og guðum. Til eru þeir sem ná Sælueyjunni, staðnum sem Hesíodos lét hetjur fjórðu kynslóðarinnar byggja (verk og dagar 156–73). Lýsingin á hetjunum hefur að geyma hugmynd um endurholdgun; eigi þær að leiða til bestu vistar þurfa hetjurnar að forðast öll illvirki. Þetta virð- ist vera aðeins önnur tilvísunin til endurholdgunar í bókmenntunum; hin fyrsta var þegar Xenofanes gerði grín að Pýþagórasi (DK B7). Að lokum sleppa hetjurnar út úr hringrás fæðinga og dauða og ná guðdómlegri sælu. Þetta minnir á Pýþagóras og Empedókles. venjulega gerir Pindar skýran greinarmun á dauðlegum mönnum og ódauðlegum guðum, en hneigir sig hér fyrir pýþagórisma Þerons með vísun sinni í sælu þeirra sem líkjast hinum fornu hetjum. Hann gefur í skyn að Þeron sjálfur geti öðlast slíka sælu.46 Í brotum sem kunna að vera úr útfararkvæðum vísar Pindar einnig til launhelga. við höfum þegar séð vísun hans til Elevsis í broti 137. Í broti 131a vísar hann til mikilvægis innvígslu, væntanlega fyrir handanhamingju: „sælir eru allir þeir sem hljóta þau örlög að njóta helganna sem leysa þá undan þjáningum.“ Í Menoni (81b8–c4) vísar Platon til orfeifsku Pindars um forna skuld við Persefónu, þ.e. þegar títanarnir drápu Díonýsos (brot 133): „Þeir sem í Helheimi guldu gamalla brota hjá Persefónu er leyft upp í ljósið að venda aftur á níunda ári. Af þeim vex konungakyn og kappar, miklir að vizku, sem vammlausir kallast um ókomin ár meðal manna.“47 inga, aðrir manntafls, enn aðrir lýrustrengja. Hjá þeim ríkir grær og blómstrar alger hamingja“. Þeir búa við „algera hamingju“, eins og Platon segir síðar í Gorgíasi (523b2). 45 Svo H. Lloyd-Jones, „Pindar and the Afterlife“, Greek Epic, Lyric, and Tragedy: The Academic Papers of Sir Hugh Lloyd­Jones, Oxford: Clarendon Press, 1990, bls. 85–87. Flestir fylgja fyrri túlkuninni. 46 Um nýlegar rannsóknir á þessum orðum, sjá Lloyd-Jones, „Pindar“; M.M. Will- cock, Pindar: Victory Odes, Cambridge: Cambridge University Press, 1995, bls. 137–40, 154–61. Hvort Pindar fallist á ódauðleika Þerons, sjá B. Currie, Pindar and the Cult of Heroes, Oxford: Oxford University Press, 2005, bls. 45–46, 223, 345–48. 47 Þýðing Sveinbjarnar Egilssonar: Platón, Menón, skólaþýðing eftir Sveinbjörn Eg- ilsson með inngangi og skýringum eftir Eyjólf Kjalar Emilsson og Gunnar Harð- arson, Reykjavík: Hið íslenzka bókmenntafélag, 1985.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.