Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2017, Page 33
32
markmið sálgreiningar.“62 Í því samhengi vísar „veruleikinn“ til norma og
fyrirmynda, og rennur þannig saman við hið ímyndaða.63 viðnám gegn
kúgandi normum liggur hins vegar ekki í möguleikanum á „annars konar
útgáfum hins ímyndaða“64 – líkt og Butler stingur upp á í Efni(s)legum lík
ömum – samkvæmt Lacan, heldur í rauninni (e. the real), hugtakinu sem
hann notaði yfir „allt það sem streitist gegn aðlögun.“65 Dean bendir á að
Butler komist að öndverðri niðurstöðu í kaflanum „Þráttað við raunina“
í Efni(s)legum líkömum, nefnilega þeirri að raunin „tryggi gagnkynhneigt
forræði.“66
vandinn við umfjöllun Butler um raunina er sá að hún reynir að gera
hana viðráðanlegri, að „laga“ kenningu Lacans í einhverjum skilningi, svo
hægt sé að opna samfélagið fyrir því sem það rúmar ekki og bæta það
þannig um leið. Í þessum tilgangi tekur hún það skref að skilgreina hvað
það sé sem heyrir rauninni til – „ákveðnar samfélagslegar og kynferð-
islegar stöður“67 sem hafa verið útilokaðar frá sviði pólitískrar merkingar
– þrátt fyrir að raunin sé skilgreind sem „breytileg mörk þess sem verður
sagt og hugsað“ í kenningu Lacans, sem lýsir henni að formgerð en ekki
innihaldi.68 Með því að gefa rauninni hugmyndafræðilega merkingu og
skilgreina þannig „mörk þess sem verður sagt og hugsað“ út frá reglum og
viðmiðum samfélagsins gefur Butler til kynna að hægt sé að losna undan
„oki“ raunarinnar.69
Það sem gerir raunina erfiða viðfangs er það sem gerir hana gagnlega,
sérstaklega í samhengi hinsegin fræða: hún er óhlutbundin, án eðlis eða
sérkenna. Dean vekur athygli á að það eigi einnig við um „þann skilning
62 „[…] it is significant that Lacan also directs his critique of norms – including what
he pointedly calls ‚the delusional ‚normality‘ of the genital relation‘ (E 245) –
against the American ideology of individualism, particularly as it finds expression
in the normalizing ethos of ‚adaptation to reality‘ that ego psychology promulgates
as the goal of psychoanalytic therapy.“ Sama rit, bls, 228–229.
63 Sama rit, bls. 228.
64 Judith Butler, Bodies That Matter, bls. 91.
65 „However, Lacan’s response to normativity is not to produce alternative imag-
inaries, but to elaborate an alternative of a different order – that of the real, a
conceptual category intended to designate everything that resists adaptation.“ Tim
Dean, Beyond Sexuality, bls. 230.
66 Sama rit, bls. 230.
67 „[…] specific social and sexual positions“. Judith Butler, Bodies That Matter, bls.
189.
68 „[…] Lacan theorizes the real as a variable limit to the speakable and the thinkable.“
Tim Dean, Beyond Sexuality, bls. 210.
69 Sama rit, bls. 211 og 230. Gæsalappir mínar.
GuðRún Elsa BRaGadóttiR