Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2017, Qupperneq 73
72
og gerðar eru aðgerðir til að búa til kvenkynfæri. Því er þó ekki alls staðar
þannig varið. Á ákveðnum svæðum Papúa Nýju-Gíneu og í Dóminíkanska
lýðveldinu er 5-ARD mun algengara en annars staðar í heiminum. Þar fá
þessi börn að þroskast án inngripa þar sem kynbreytileikinn er þekktur og
ekki er litið á hann sem læknisfræðilegt ‚vandamál‘. Þar eru einnig til orð
sem notuð eru í stað drengur og stúlka yfir börn með þennan breytileika:
Í Papúa Nýju-Gíneu kallast slík börn kwoluaatmwol, sem þýða mætti sem
umbreytist frá kvenveru yfir í karlveru,124 og í Dóminíkanska lýðveldinu
kallast þau guevedoche, sem þýða mætti sem eistu við tólf ára aldur.125
Finna má dæmi um kynbreytileika á borð við þann sem hér er lýst í
erlendum heimildum frá fyrri öldum, á þeim tíma þegar hvorki var til
þekking til að greina hann né tækni til að fást við hann á nokkurn hátt.
Hafi Guðrún Sveinbjarnardóttir fæðst með slíkan kynbreytileika, eða
annan svipaðan, voru tveir kostir í boði: Að opinbera breytinguna og hefja
líf sem karlmaður eða hylma yfir breytinguna og halda áfram að lifa sem
kona. Ekki eru neinar þekktar heimildir úr íslenskri sögu fyrri alda um
einstaklinga sem hófu að lifa í nýju kynhlutverki á fullorðinsárum vegna
rangrar kynákvörðunar við fæðingu. Það er því hægt að geta sér til um að
slík ákvörðun hefði verið næsta ómöguleg í tilviki Guðrúnar og því síðari
kosturinn í raun eini kosturinn. Herculine Barbin, sem áður hefur verið
minnst á, lifði sem kona til tvítugs, hóf síðan líf sem karlmaðurinn Abel
Barbin eftir að læknar og lögfræðingar höfðu kveðið upp úrskurð um hið
sanna kyn hans. Barbin var greind með það sem kallað var „male pseudo-
hermaphrodite“ en 5-ARD er ein tegund þess og sennilegt að um slíkt
hafi verið að ræða í tilviki Barbin þótt þekking á því væri ekki fyrir hendi
124 Sama heimild, bls. 40; Gilbert Herdt, „Mistaken Sex: Culture, Biology and the
Third Sex in New Guinea“, Third Sex, Third Gender: Beyond Sexual Dimorphism
in Culture and History, ritstj. Gilbert Herdt, New York: Zone Books, 1994, bls.
419–445; og Julianne Imperato McGinley, L. Guerro, T. Gautier og R. E. Pet-
erson, „Steroid 5-alpha Reductase Deficiency in Man: An Inherited Form of Male
Pseudo-hermaphroditism“, Science 186 (4179), 1974, bls. 1213–1215.
125 Sharon E. Preves, Intersex and Identity, bls. 41; Julianne Imperato McGinley o.fl.,
„Steroid 5-alpha Reductase Deficiency in Man“; og Julianne Imperato McGinley,
R. E., Peterson, T. Gautier og E. Sturla, „Androgens and the Evaluation of Male-
Gender Identity among Male Pseudohermaphrodites with 5-alpha Reductase
Deficiency“, New England Journal of Medicine 300, 22/1979, bls. 1233–1237. Fjallað
er um þennan breytileika í nýlegri heimildaþáttaröð BBC um fósturþroska: Austin,
Naomi og Helen Sage, „9 Months That Made You“, BBC Earth, heimildamyndaröð
í þremur þáttum, 2016. Þættirnir voru sýndir í íslenska ríkissjónvarpinu í apríl
2017.
soffía auðuR BiRGisdóttiR