Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2017, Síða 95
94
þeirra er náið en ekki erótískt eða kynferðislegt en ýmislegt bendir samt
til þess að Bóas laðist líka að sama kyni og að hann reyni ítrekað að hjálpa
Halldóri að skilja eigin langanir með því að fá hann til að lesa og skilja
fyrrgreinda skáldtexta.
Úranía er „alþýðleg stjörnufræði í skáldsögubúningi“, eins og þýðand-
inn Björn Bjarnason frá viðfirði kemst að orði í formála að íslensku þýð-
ingunni sem kom út árið 1898.37 Þar segir frá tveimur stjörnufræðingum,
sögumanninum og vini hans, Georg Speró, sem báðir eru hugfangnir af
hugmyndum um tengsl sálarlífs, heimspeki og stjörnufræði og mögu-
leikanum á framhaldslífi annars staðar í alheiminum eftir dauðann. Báðir
ferðast til annarra sólkerfa og pláneta, ýmist í draumi, með aðstoð miðla
eða eftir dauðann, og uppgötva að í samanburði við önnur samfélög eru
Jarðarbúar vanþróaðir andlega og um of bundnir efnislegum þáttum, svo
sem peningum, valdi og líkamlegum þörfum. Annars staðar í alheiminum
er að finna samfélög þar sem andinn ræður yfir efninu og íbúarnir skynja
umhverfi sitt á allt annan hátt en Jarðarbúar. Síðast en ekki síst uppgötva
þeir félagar að allur alheimurinn er tengdur í tíma og rúmi og að eftir
dauðann er mögulegt að yfirgefa Jörðina og færast upp á æðra tilverustig á
öðrum hnetti – en aðeins ef viðkomandi Jarðarbúi hefur sýnt að hann hafi
nægan andlegan þroska. Þetta sannast á Georg og unnustu hans, Íkleu, en
þau fórna sér hvort fyrir annað, deyja og endurholdgast á Mars þar sem
þau eru sameinuð á ný. Það geta þau fyrst og fremst af því að ást þeirra er
í eðli sínu allsendis óskyld því, er vanalega á sjer stað í þeim efnum
milli manns og konu, er þau bindast böndum að eins af holdleg-
um hvötum eða þá í von um auð og upphefð, þótt undir niðri sje.
Andlegur þroski þeirra hóf þau á háleitara svið, er fáir fá náð, þar
sem hugsjónin ríkir og líkamsþarfirnar hvíla eigi sem martröð á sálu
manns.38
37 Björn Bjarnason frá viðfirði, formáli að Camille Flammarion, Úranía, þýð. Björn
Bjarnason frá viðfirði, Kaupmannahöfn: Oddur Björnsson, 1898, bls. v–IX, hér
bls. vI. Á frummálinu nefnist bókin Uranie; hún kom fyrst út í Frakklandi árið
1889 og í enskri þýðingu sem Urania ári síðar. Þýðing Björns er úr frönsku. Elías
las Úraníu, að öllum líkindum í þýðingu Björns, árið 1945, einmitt á meðan hann
var að skrifa Man eg þig löngum. Sjá Lbs. (Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn,
handritadeild) 13 NF – CB, Elías Mar, skjala- og handritasafn, minnisbækur, hljóð-
snældur og laus blöð, askja 1, minnisbók 1945, 5. júlí.
38 Camille Flammarion, Úranía, bls. 70.
Ásta KRistín BEnEdiKtsdóttiR