Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1934, Blaðsíða 20
18
8. Iðrakvef (gastroenteritis acuta).
Töflur II, III og IV, 8.
S júklingafíöldi 1925—1934:
1925 1926 1927 1928 1929 1930 1931 1932 1933 1934
Sjúkl......... 1047 1303 2158 2370 2515 2037 3138 2523 3200 1585
Dánir ........ 1 5 ,, ,, 4 4 5 1 8 1
Á iðrakvefi bar með minna móti og er naumast getið sem eiginlegs
faraldurs, nema í einu héraði (Síðu).
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Óvenju fátítt á árinu.
Borgarfí. Enginn verulegur faraldur, og engin þung tilfelli.
Borgarnes. Væg, en sjaldan annað en bráð meltingartruflun, sem
batnaði fljótt.
Hesteyrar. Stöku væg tilfelli öðru hvoru.
Miðfí. Enginn verulegur faraldur.
Svarfdæla. Stakk sér eitthvað niður flesta mánuðina, en gekk aldrei
sem faraldur.
Reykdæla. Gekk nokkuð um héraðið í ágústmánuði. Varð ekki var
við svæsin tilfelli, né blóð í saur.
Öxarfí. Enginn faraldur. Meira að segja sláturhúsamenn óvanalega
matheilir.
Síðu. Varð fyrst vart við veikina seinnipart júlí í austasta hreppi
héraðsins, — hafði því sennilega borizt að austan. Hún fór hægt yfir
um sláttinn, en mun hafa verið að stinga sér niður hér og þar fram
að áramótum, og um áramót barst hún aftur á bæ, þar sem allir höfðu
fengið hana í ágúst. Einkenni þessa faraldurs var ógleði og uppsala.
Börn fengu undantekningarlaust uppsölu, og voru sum með hana
sólarhring eða lengur. Það, sem þau drukku, fór undir eins upp úr
þeim, hversu lítið sem það var, og þó að þau létu ekkert ofan í sig,
voru þau samt við og við að kúgast. Milli kastanna voru þau verkja-
laus og leið vel. Hitahækkun var lítil, um 38,5?, þegar mest var. Full-
orðnir fengu líka uppsölu, en ekki þó eins þráláta, og sumir aðeins
ógleði. Flestir, en ekki allir, fengu niðurgang, og oft kom hann ekki
fyrr en uppsala var hætt. Flestir fullorðnir gátu gengið að störfum
sínum á 1. degi, eða eftir einn dag.
Eyrarbaklca. Kom sjaldan fyrir og dreift og fór aldrei sem farsótt
um héraðið. Á vinnuhælið kom kvilli þessi í haust (í nóvember) á
allmarga fangana, fluttur þang'að með föngum frá Reykjavík.
9. Inflúenza.
Töflur II, III og IV, 9.
Sjúklingafíöldi 1925—1934:
1925 1926 1927 1928 1929 1930 1931 1932 1933 1934
Sjúkl......... 941 3114 1993 5090 7110 1168 7362 1282 6578 670
Dánir ........ 7 23 7 17 21 5 22 1 14 <>