Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1934, Blaðsíða 76
74
Síðu. 1 timburhús var reist á árinu. Einnig 1 rafstöð, knúin
af vatni, og 3, er ganga fyrir vindi. Hefir þá þriðjungur heimila í
héraðinu (37 af 111) fengið rafmagn, en sum þeirra þó aðeins til
Ijósa. Safnþrær voru steyptar á 20—30 heimilum í héraðinu, og i
sambandi við þær voru víða reist vönduð salerni. Fækkar nú óðum
þeim bæjum, er ekkert salerni eiga.
Mýrdals. 2 ný íbúðarhús voru reist á árinu. Miðstöðvarhitun var
sett í nokkur hús og ýmsar aðrar endurbætur gerðar.
Vestmannaeiija. Á árinu hafa hér verið reist 7 íbúðarhús úr stein-
steypu, 1 vörugeymsluhús, steinsteypt, 1 steinhús til lifrarmjöls-
framleiðslu. Auk þess er gert við ýms hús. Þrifnaður fer smámsaman
batnandi. Holræsi og gatnagerð með meira móti í haust. Nú er mest
aðkallandi til þrifnaðarauka og hreinlætis að fá sjóveitu til salerna í
bænum, svo að þau geli komið í stað þeirra heilsuspillandi kagga-
salerna, sem almenningur verður að nota. Ég vona, að þessu þrifn-
aðarmáli verði komið í framkvæmd á næstu árum. Loksins eru komin
vatnssalerni í barnaskólann hér í stað forarsalerna þar. Því miður er
vatn af þaki skólans ekki nægilegt, svo að þau geti verið í gangi
meðan skólahald er, og mun þetta flýta fyrir framgangi sjóveitu til
almenningsþarfa.
Grímsnes. 2 steinhús hafa verið byggð, annað þeirra raflýst. Enn-
fremur hefir íþróttaskólinn í Haukadal verið raflýstur.
Keflavíkur. Húsakynnum, betri og þægilegri, fjölgar með hverju
ári, og þau lélegri hverfa. Þó er ennþá töluvert af lélegum bygging-
um eftir. Þrifnaður er víða að batna. Þó er á vertíðinni víðast í sjáv-
arþorpunum slæmur þrifnaður, — aðeins hugsað um að fá sem mest
á land, en minna hirt um að koma slógi og öðrum úrgangi frá. Opnu
forirnar sjást víða ennþá, og hafa sjálfsagt ekki drukknað nógu margir
í þeim enn.
5. Fatnaður og matargerð.
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Sveitamenn spara um of við sig mjólkina vegna sölu
á henni til Reykjavíkur. Lifa þeir meir á kornmat en nauðsyn er á.
Borgarnes. Kartöflurækt gæti verið hér mjög mikil. Kartöflurnar
vaxa hér vel, og er byrjað að nota af nýju uppskerunni snemma í
ágúst, þegar sæmilega viðrar. Nýr fiskur fæst hér sjaldan á sumrin,
nema lax, sem er almenningi of dýr. íshús er hér ekki.
Bíldudals. Klæðnaður er glæsilegur að ytra útliti, en ekki að sama
skapi hollur. Er hann fremur miðaður við erlenda tízku og tildur
heldur en íslenzkt loftslag og staðhætti. íslenzk ullarföt eru í megn-
ustu fyrirlitningu.
Flateyrar. Illa gengur mér að fá menn til að nota gæruskinn til
fata (skinnvesti). Þó er bót í máli, að þeir, sem taka það upp, leggja
það aldrei niður aftur. Allir hafa hér nóg að bíta og brenna, t. d. nýjan
fisk, árið í kring. Verst er, hvað tízkan og æskuóvani gerir marga
óskynsama í vali fæðu. Neytt er hér ákaflega mikils hveitis og sykurs,
en lýsisnotkun er hvergi nærri eins almenn og regluleg og vera ætti,