Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1934, Blaðsíða 24
22
smitazt af hinum, þó að þeir hefðu ekkert saman að sælda og sæjust
ekki. Seinna tilfellið var að vísu all-ólíkt hinu fyrra og mjög miklu
þyngra. Fleiri sýktust ekki. Engir fylgikvillar.
Borgarnes. Varð vart í tjaldbúðum vegamanna á Holtavörðuheiði.
Var ég sóttur og fyrirskipaði allar þær sóttvarnir, sem við var komið.
Sjúklingurinn var þungt haldinn, og sótti Rauðakrossbíll hann og
flutti til Reykjavíkur. Annar af tjaldnautum hans sýktist síðar og
mun hafa verið fluttur á sjúkraskýlið á Kleppjárnsreykjum.
Dala. Varð fyrst vart í júní. Ö!1 tilfellin (3) á sama heimilinu. Mun
veikin hafa borizt með manni, sem kom á heimili þetta, frá sjóróðrum
í Keflavík. Ákveðin var 5 vikna sóttkví á heimilinu frá því að sá
síðasti veiktist. í október varð veikinnar aftur vart á 3 bæjum í Saur-
bæ, og eftir lýsingu að dæma á 2 öðrum bæjum. Var því fyrirskipuð
sóttkví á 5 hæjum, samkomur bannaðar og barnaskólahald upp-
hafið fyrst um sinn og krafizt S daga einangrunar á þeim, er vildu
fara út úr hreppuum. Auglýsingar og aðvaranir um sóttina voru festar
upp í hreppnum og nágrannasveitum. Sóttin var fremur væg og tók
einkum börn. í nóvember bætast enn við 6 bæir. Sömu útbreiðsluvörn-
um og áður haldið áfram. 1 sjúklingur dó.
Þingeijrar. Skarlatssótt virðist hér landlæg um margra ára skeið.
Koma á hverju ári nokkur tilfelli í dagsljósið. Þó munu hin fleiri,
sem eigi fást upplýsingar um. Við eftirgrennslun kemst maður að
ýmsum ambulant tilfellum, sem aðeins lýsa sér sem sárindi í hálsi,
en er að öðru leyti ekki veitt eftirtekt. Oft má í alvarlegri tilfellum
rekja ferilinn til slíkra tilfella, sem enginn hefir haft grun um, að
væri skarlatssótt. Að þessu sinni hefir veikin gert með meira móti
vart við sig. Var venju fremur þung. Bar mest á henni síðari hluta
ársins í byrjun skólahalds. Voru þá gerðar ýmsar ráðstafanir til að
verja skólana. Sonur skólastjóraus á Þingeyri veiktist. Skólastjóri
sóttkvíaður í 6 vikur. Börnum frá skarlatssóttarheimilum bönnuð
skólavist í 6 vikur. Munu þessar ráðstafanir hafa dregið nokkuð úr
útbreiðslu. Héraðsskólinn á Núpi reyndi að einangra sig, en tókst
eigi. Hinsvegar tafði veikin lítt skólahald. Var í rénun við áramót.
2 sjúklingar fengu nephritis. Annars eigi alvarleg eftirköst. Enginn dó.
Flateyrar. Aðeins eitt tilfelli kom fyrir hér á Flateyri. Sjúklingur-
inn smitaðist í Súgandafirði rétt eftir áramótin. Hann var einangr-
aður og sótthreinsaður.
ísafi. 22 tilfelli af skarlatsótt komu fyrir í héraðinu. Voru allir
sjúklingarnir einangraðir, og tókst þannig', að stöðva útbreiðslu veik-
innar.
Ögur. Drengur frá Isafirði veiktist inni í Reykjanesi. Læknis var
vitjað þegar sjúklingurinn hafði legið í 4 daga. Var strax fluttur til
ísafjarðar og einangraður þar. Heimili það í Reykjanesi, sem veikin
kom upp á, var sóttkvíað í rúma viku. Fleiri tilfella varð ekki vart.
Miöfi. Faraldurinn, sem gekk hér síðastliðið ár, var að líða undir
lok í ársbvrjun, og bættust engir nýir sjúklingar við í sambandi við
hann. Um mitt sumar kom veikin upp í einu húsi hér á Hvamms-