Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1934, Blaðsíða 79
6. Mjólkurframleiðsla og mjólkursala.
Læknar láta þessa getið:
Hnfnarfj. Hér er nú seld stassaniseruð mjólk. Dýralæknir skoðar
fjós og kýr og athugar allt hreinlæti.
Skipaskaga. Á matvælum hefir enginn skortur verið og nægileg
mjólk. Mjólkurfélag stofnuðu bændur í Ytri- og Innri-Akraneshrepp
á þessu ári. Þó er í þessum félagsskap ennþá ekki nema rúmur helm-
ingur allra kúaeigenda á Akranesi, en allir bændur, að fjórum undan-
skildum, í Innri-Akraneshreppi. Félagsmenn létu dýralækni Hannes
Jónsson berklaprófa allar kýr í báðum hreppunuin og skoða fjósin.
Kýrnar reyndust allar heilbrigðar. Aftur á rnóti eru fjósin óviðunandi
viðast hvar, nema á einstaka heimilum. Þó munu þau ekki vera
notuð sem salerni, þótt víða vanti þau í sveitum. Fólkið, sem við
mjaltir fæst, er heilbrigt, en þrifnaður sumstaðar langt frá því að
vera svo góður sem skyldi. Mjólkin er aðallega seld i Akraneskaup-
túni og gengur hún í gegnum hreinsivél. Þar sem þetta fyrirtæki er
aðeins fárra daga gamalt, og' engin reynzla af því, verður frekari
greinargerð að bíða næstu skýrslu. Allflestir bændur í uppsveitum
héraðsins selja mjólk sína Mjólkurfélagi Reykjavíkur og hafa fengið
18—20 aura fyrir lítra.
Borgarnes. Mjólk er nægileg. Er nú allt, sem selt er, látið ganga til
Mjólkursamlags Borgfirðinga, og mun mjólkin fara þar í gegnum
einhvern hreinsunareld. Dýralæknir ferðast um héraðið og lítur eftir
hreinlæti í fjósum og heilsufari kúnna, og öll mjólk, sem kemur til
samlagsins, er sýru- og gerlaprófuð. Mjólkin, sem seld er í þorpinu,
er frá góðum heimilum, sem sérstaklega er litið eftir, og hreinsuð
er hún með sérstökum áhöldum, en ekki hituð að ráði. Önnur mjólk
er soðin niður eða unnið úr henni skyr, smjör o. s. frv.
Bíldudals. í kauptúninu Bíldudal og nálægum bæjum, Otrardal og
Bóli, sem flytja og selja mjólk til þorpsbúa, eru 24 kýr og um 50
geitur. Á þessu svæði eru 330 manneskjur. Reiknast mér svo til, að
% lítri komi á mann, eða nálægt því. Auðvitað kemur mjólkin ekki
jafnt niður, en gera má ráð fyrir, að börnin séu ekki gerð afskipt.
Fjósin og allur þrifnaður og umgengni er sæmileg, og ekki er mér
kunnugt um, að neinir næmir sjúkdómar, sérstaklega berklaveiki,
séu á þeim heimilum, sem mjólk er seld frá.
Sauðárkróks. I kauptúninu eru um 130 kýr, en íbúar Sauðárkróks
voru um áramót 873. Er því tiltölulega lítið selt af mjólk til kaup-
túnsins. Er það aðallega frá einum bæ — Holtsmúla. Á því heimili
er engin berklaveik manneskja. Fjósið er eins og gerist á bæjum,
ekki gott. Umgengni og þrifnaður í meðallagi. Á heimili þessu er
salerni.
Öxarfj. Engin framleiðsla er hér á mjólk í því augnamiði að verzla
með hana. Kýr eru varla til heimilisþarfa, hvað þá meir. Samt er al-
gengt að mjólk fari á milli heiinila, einkum þar sem þéttbýlast er, og
stafar það af því, hve kýr eru fáar og lítið um mjólk. Menn lána,
selja að nafni, eða gefa granna sínum mjólk, þegar kýrin er þornuð