Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1934, Blaðsíða 80
78
hjá honum. Heimavistarskólarnir keyptu framan af alia sína mjólk,
tínda að héðan og þaðan, en það varð lítið vegna mjólkureklu, oftast
miðað við mörk á dag handa barni. Nú hafa þessir skólar eigin kýr.
Héraðið býr við sauðfé mest. Kúahald er miðað við að hafa „út á“ og
viðbit til heimaþarfa, en nægir víða ekki til þessa allt árið. Raufar-
hafnarbúar voru mjólkurlausir fyrir ca. 10—12 árum. Þá tóku þeir
að hafa geitur. Fyrir nokkrum árum þurrkuðu þeir og yrktu mýri
eina í félagi, Ióguðu geitum og keyptu kýr. Þæi' eru nú um 30 í þorp-
inu (200 manns). Nú í vetur smádrápust nokkrar kýr hér og þar í
þorpinu, að því er virðist, að verið gæti út næmri pest. Svo mikið var
rænuíeysi þorpsbúa, að þeir töluðu ekki við dýralækni og ekki einu
sinni við mig, sem er óvanalegt, þó að skepna eigi í hlut.
Fáskrúðsfi. Kúabú lítil og of lítið um mjólk, en hefir þó farið
batnandi, t. d. í Búðakauptúni, með aukinni ræktun.
Síðu. Mjólk er engin seld úr SíðuhéraðL
Grímsnes. Mjólkursala er almenn hér til mjólkurbúanna. Um fjósin
er það að segja, að þau fullnægja víða ekki lágmarkskröfum um
hreinlæti, en þannig byggð, að hreinsun er erfið (moldarveggir, tróð
úr torfi eða heyi innan á járnþakinu). Óvíða held ég, að fjósin full-
nægi kröfum hinnar nýju reglugerðar um meðferð mjólkur og rjóma,
enda ekki ennþá unnizt tími til að breyta þeim í samræmi við hana.
7. Áfengisnautn. Kaffi og tóbak.
Læknar láta þessa getið:
Hafnarfi. Áfengissala er hér og því nokkur áfengisnautn, en mest
kveður að því hjá utanbæjarmönnum. „Landi“, sem áður var hér
all-algengur, sést nú ekki. Reykingar virðast fara hraðvaxandi, sér-
staklega sígarettureykingar barna og unglinga.
Skipaskaga. Áfengisnautn er hér ekki mikil, en þekkist þó. Kaffi-
drykkja mikil. Tóbaks neyta menn hér í óhófi, einkum neftóbaks og
vindlinga.
Borgarfi. Vínnautn er nokkur á samkomum, fer þó sízt vaxandi.
Borgarnes. Áfengi mun vera notað allt of mikið af einstökum mönn-
um, en þó ekki meira en áður.
Dala. Áfengisnotkun á sér ekki stað. Heimabrugg hvergi.
Bíldudals. Áfengisnautn talsverð meðal yngra fólks. Tóbak er tals-
vert notað, einkum vindlingar, meðal yngra fólks hvorttveggja, á-
fengi og tóbak, er mest notað í kauptúninu, miklu minna í sveit-
unum.
Þingeyrar. Áfengisnautn getur eigi talizt mikil. Aðeins 3 eða 4 munu
drekka, svo að orð sé á gerandi. Þegar erlend skip ber að garði, kem-
ur fyrir, að menn nái sér í flösku og' flösku, en vfirleitt er það ekki
áberandi. Fáir munu svo fyrirhyggjusamir að panta áfengi annars-
staðar að. Grunur hefir í nokkurn tímá legið á heimili nokkru um
heimabrug'gun. Þó er það ósannað og hefir eigi verið framkvæmt i
stórum stíl.
Flateyrar. Áfengisnautn er lítil i héraðinu, á Fíateyri helzt þegar
skip koma. Tóbak er almennt notað af körlum, jafnt fátækum heim-