Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1934, Blaðsíða 55
4, grindarþrengsli 12, þverlega 1, vatnshaus 1, framfallinn lækur 1,
spangargagnrifa 1.
Eins og' undanfarin ár hefir verið tekin saman skýrsla yfir cur-
ettage-aðgerðir, sem getið er um á sjúkrahúsunum á árinu, og er hún
prentuð hins vegar. Fer hér á i eftir 5 ára yl'irlit:
Abrasio
Abortus s. Abortus mucos. uteri af
seq. abortus provocatus öðru tilefni Alls
1930 . 84 52 89 255
1931 . 97 92 160 349
1932 . 133 91 131 355
1933 . 121 80 135 336
1934 . 95 54 126 275
Á árinu sljákkar verulega í þessum aðgerðum, og mega þær nú
heita svipaðar og þær voru fyrsta árið, er skýrslurnar voru gerðar.
Kaþólsku sjúkrahúsin i Reykjavík og Hafnarfirði hafa lagt bann á
fóstureyðingaraðgerðir í sínum húsakynnum, enda hattar þar fyrir.
Sjúkrahús Hvítabandsins hefir aftur tekið við. Enn sem fyrr er fullur
grunur á, að fleira af þessum aðgerðum séu fóstureyðingar, en því
nafni fær að heita. Fjöldi fósturlátanna í Reykjavík og grennd er i
engu hlutfalli við það, sem eðlilegt má telja, miðað við það, sem vit-
að er, að hér átti sér stað fyrir fáum árum og enn á sér stað úti um
land, jafnt í kaupstöðuin og lil sveita. Og eftirtekt vekur það, er á
einu sjúkrahúsinu í Reykjavík (Sólheimum) hverfa fóstureyðingar
með öllu á einu ári, fósturlátum fækkar úr 33 niður í ein 4, en cur-
ettage-aðgerðum fækkar í engu hlutfalli við þetta (45:63), því að
metrorrhagiae og' amenorrhoe færist jafnframt í aukana! Hin nýju
fóstureyðingarlög, sem koma til framkvæmda á næsta ári, eru að ein-
hverju leyti farin að verka, og' að því er virðist ekki að öllu leyti heppi-
lega. Mætti ugga, að þau gerðu lítið annað en að reka þessar aðgerðir
enn dýpra inn í skúmaskotin, og reynir hér á karaktér hinnar is-
lenzku læknastéttar, sem hér eftir á sér engar afsakanir í þessum
málum. Löggjöfin um fóstureyðingar er nú eins og hún óskaði eftir.
Læknar láta þessa getið:
Skipaskaga. Fæðingar hafa gengið með afbrigðum vel á þessu ári,
og aldrei þurft að leggja á töng. Lækna hefir verið vitjað til sængur-
kvenna 30 sinnum, 18 sinnum til deyfinga við eðlilega fæðingu.
Borgarfj. Fæðingar gengu allar slysalaust. Ljósmæður geta ekki um
fósturlát, en tvisvar var mín vitja þeirra erinda. Þurfti þó ekki að-
gerða við. Abortus provocatus aldrei gerður. Fáir leita ráða um tak-
mörkun barneigna.
Borgarnes. í Kolbeinsstaðahreppi fékk 1 stvilka fæðingarkrampa á
miðjum meðgöngutíma. Var ég sóttur til hennar, og tókst að laga þetta
svo að allt gekk sinn gang. Hún fæddi löngu síðar fullburða barn. Ég
var ekki viðstaddur neitt fósturlát og veit ekki af neinum slíkum, ekki
heldur abortus provocatus. Eitthvað munu getnaðarvarnir hafa verið
um hönd hafðar, en ekki í stórum stíl ennþá.