Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1934, Blaðsíða 34
2. Berklaveiki (tubereulosis).
Töflur V, VI, VIII og X.
S júklingafiöldi 1925—1934:
1. Eftir mánaðarskrám:
1025 1926 1927 1928 1929 1930 1931 1932 1933 1934
Tb. pulm. . . 725 586 771 737 538 407 440 446 471 392
Th. al. loc. . . 375 425 429 489 457 355 300 279 344 434'
AIls . 1100 1011 1200 1226 995 762 740 725 815 826
Dánir . 215 183 206 211 214 232 206 220 173 165
2. Eftir berklaveikisbókum (sjúkl. í árslok) :
1925 1926 1927 1928 1929 1930 1931 1932 1933 1934
Tb. pulm. .. 625 566 669 699 640 685 585 611 869 917
Tb. al. loc. . . 236 238 252 331 349 387 299 401 684 714
Alls ... 861 804 921 1030 989 1072 884 1012 1553 1631
Skýrslur héraðslækna uin herklaveiki eru sífellt nijög ófullkomnar.
Og er bersýnilegt á heildarskýrslunni samkvæmt berklaveikisbókum
héraðslæknanna (tafla VIII), að mikið vantar á, að heildaryfirlitið sé
nærri viðunandi lagi. Þannig geta þessar skýrslur aðeins um 93 manns-
lát af berklaveiki af 165 samkvæmt dánarskýrslum. Þær greina að-
eins 8 sjúklinga með heilahimnuberkla og þar af 7 dána, en dánar-
skýrslur telja 26 dána úr þeirri tegund berkiaveiki. Sennilega eru
þessar skýrslur úr Reykjavík og Hafnarfirði ófullkomnastar og raunar
kák eitt. Á Reykjavíkurskýrslunni er t. d. ekki að sjá, að neinn berkla-
sjúklingur þaðan hafi legið á Vífilsstöðum, og sífellt virðist það fara
framhjá héraðslækni í Hafnarfirði, að Vífilsstaðir eru í hans héraði.
Þrátt fyrir hækkandi heildartölu á berklaskýrslum, bendir sú eina
tala, sem tiltölulega áreiðanlega má telja, dánartalan, á rénun veik-
innar. Árið 1933 lækkaði dánartalan sltyndilega úr um og yfir 200
og um 2%0 af öllum landsmönnum, sem hún hafði verið í síðan 1924
(197—232, nema árið 1926: 183) niður í 173 og 1,5%0. Dánartalan
lækkar enn á þessu ári (165, 1,4%0). Fellur nú berklaveikin, í fyrsta
skipti eftir langan tíma, úr forsæti dánarmeinanna og verður önnur
í röðinni, næst á eftir ellikröm.
Berkladauðinn sundurliðast þannig (tölur síðastliðins árs í svigum):
Úr lungnaberklum dóu 108 (118), berklafári 7 (8), eitlatæringu 1 (1)>
beina- og liðaberklum 8 (5), heilahimnuherklum 26 (24), berklum í
kviðarholi 8 (14), berklum í þvag- og getnaðarfærum 2 (1) og' í öðr-
um líffærum 5 (2).
Það vakti sérstaka athygli á fyrra ári og' gaf nokkra von um, að i
raun og veru væri farið að draga úr berklasmituninni í landinu, að
dauði úr heilahimnuberklum rénaði mjög mikið, þar sem aðeins 24
dóu úr þeirri tegund berklaveiki, sem er 13,9% alls herkladauðans,
en síðan 1924 hefir sú dánartala verið um og yfir 40 (36—46) og
flest árin síðan 1911, að fullkomin dánarskýrslugerð hefst, nálgast