Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1934, Blaðsíða 26
24
ákafa klóniska krampa — sem nálega höfðu gert út af við þau. 1
sjúklingur fékk liðabólgu upp úr skarlatssóttinni. Enginn sjúkl-
ingur dó.
ScySisfj. Hefir verið viðflækt hér síðan haustið 1932, en virðist nú
algerlega útdauð. 1 barn dó úr septiskri skarlatssótt, og var það
eina tilfeliið af því tagi. Annars var veikin alltaf mjög væg. Aldrei
hefir verið beitt neinum ströngum sóttvarnarráðstöfunum eða inni-
lokun á fólki viðhöfð, heldur aðallega brýnt fyrir sýktum heimilum
að viðhafa alla varúð í umgengni við önnur heimili og dagleg sótt-
hreinsun um hönd höfð eftir mætti.
Fáskrúösfj. Fylgikvillar: ot. media á 2 sjúklingum.
Mýrdals. Skarlatssótt barst í Mýrdalinn frá Hafnarfirði, komst á
3 heimili, en varð stöðvuð með samgönguvarúð. Um líkt leyti mun
hún hafa borizt undir Eyjafjöll. Vissi ég ekki um hana [)ar fyrr en
hún hafði náð allmikilli útbreiðslu, og sennilega meiri en mér varð
nokkurntíma kunnugt um. Yfirleitt var hún væg, en eyrnabólgur
voru mjög tíðar í sambandi við hana.
Vestmannaeijja. Aðeins 2 tilfelli, einangruð á sjúkrahúsi.
Eijrarbakka. Af skarlatssótt sá ég 1 tilfelli á Gljúfri í Ölfusi í
sumar. Það var vægt, en þó glöggt. Síðar heyrði ég að einhver skar-
latssóttartilfelli hefðu komið fyrir á árinu á „Barnaheimilinu“ í
Hveragerði í Ölfusi, en mér hefir ekki verið tilkynnt um það og
læknis hér í héraði ekki verið vitjað þangað.1) í lok ágústmánaðar
fékk ég skýrslu um 3 skarlatssóttartilfelli í Ölfusi þann mánuð. Skar-
latssóttin í Ölfusi barst frá Reykjavík.
Grimsnes. Langalvarlegasti faraldur ársins. Barst veikin í janúar
í Laugarvatnsskóla með nemendum, sem komu úr jólafríi. Veiktust
40—50 nemendur, sumir allþungt. Mörg tilfellin voru létt, aðeins
angina, Htill hiti 1—2 daga, lítið eða ekkert exanthem, og til voru
þeir, sem ekkert veiktust, en hreistruðu síðar. Voru allir hinir sýktu
einangraðir og hjúkrunarkona fengin til að gæta þeirra, en skólinn
því næst einangraður. Var faraldri þessum lokið í marzlok. Eng'inn dó.
Veikin barst ekki út frá skólanum. Einstöku tilfelli komu fyrir í vor
og sumar, sem stöfuðu frá vermönnum, er komu sunnan úr veiði-
stöðvunum. Seint í nóv. gaus svo upp annar faraldur í Laugarvatns-
skóla, en þá sýktust aðeins 12 nemendur, og var honum lokið seint
í desember. Sótthreinsun fór fram á sjúkraherbergjunum að veikinni
afstaðinni í bæði skiptin.
Keflavikur. Veikin hélt áfram frá fyrra ár.i og náði talsverðri út-
breiðslu í Keflavík og nágrenni. Væg framan af, en síðustu mánuðina
þyngri og meira um fylgikvilla. Þar eð veikin hafði verið svo væg'
framan af og hafði náð mikilli útbreiðslu, var ekki hægt að stemma
stigu fyrir henni, og þó að fólk hefði verið aðvarað um að hafa varúð,
var slíku ekki sinnt. Skólum var aldrei lokað í Keflavík, þar sem
veikin hélt sig aðallega. Á Vatnsleysuströndinni kom hún á nokkra
bæi, síðast í Brunnastaðahverfinu á 1 heiinili, þar sem voru 10 börn,
1) Héraðslæknir hefði ekki átt að láta slíka vanrækslu afskiptalausa.