Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1934, Page 73

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1934, Page 73
71 stór. Dæmi: Hús með kjallara undir, ein hæð og port og svo ris. Kjallarinn stór og dýr með miðstöðvarofni og nokkrum geymslu- klefum, á hæðinni 4—5 herbergi og eldhús, og svo 3—4 herbergi uppi á lofti. 1 einu slíku húsi veit ég til, að ekki býr annað fólk en bóndinn og ráðskona hans, sem ekki munu nota nema tvö herbergi og eldhúsið. Fólkið er að verða svo fátt í sveitunum: húsráðandi, kona eða ráðskona, máske nokkur börn um eða innan við fermingn, og í stöku tilfelli eitt gamalmenni. Vinnandi fólk óvíða nema hús- bændur — kaupgjaldið of hátt og lífið dauflegt. Húsin standa hálf- tóm og mæna yfir mýraflákana, eins og þau séu að spyrja, hvaða meining' sé í að láta þau verða til. Miðstöð er í hverju húsi, en sjaldan í hana lagt, að minnsta kosti ekki neitt, sem verulega hitar, því að kol, flutt upp i sveit, eru flestum of dýr. Taðið verður að fara á túnin, skógarviður er ekki til, og mórinn slæmur og blautur. Líka er hætt við, að gleymist að skrúfa frá ofnunum, svo að vatnið renni úr þeim, þegar frost er í aðsigi, og þá springur allt saman, og er ó- nothæft þann veturinn. Ég get þessa vegna þess, að kuldinn í þessum hálfröku steinhúsum getur verið hættulegur heilsu manna. Ég sagði, að húsin væru óhentug. Auk erfiðleika að halda hreinni stærri íbúð en maður þarf, er það bagalegt fyrir húsmæður að þurfa að rása upp og ofan stiga — kannske tvo — milli íbúðar, eldhúss og geymslu, •— ég tala ekki um, ef þær eru þungaðar eða með barn á handlegg. Kona kom nýlega til mín með stokkbólgna fætur. Hún hafði verið svo heppin að geta leigt húsmennskumanni með lítilli fjölskyldu aðalhæð hússins. Sjálf bjó hún með manni sínum uppi á lofti, ásamt tveim börnum, í hæfilegu íbúðarplássi, en eldhúsið var niðri í kjallara eins og gengur, og hún varð að hlaupa upp og ofan 2 stiga mjög oft á dag. Ég álít, að íbúðin eigi að vera öll á sömu hæð, og stór þarf hún ekki að vera á smærri jörðunum. Kjallarinn þarf ekki að vera nema lítil hola undir einhverju horninu, ef vel hagar til. Skúr má hafa eða skemmu til geymslu, jafnvel byggða úr torfi og grjóti eins og í gamla daga, og miðstöð þarf óvíða, aðeins einn góðan ofn. Það virðist blóðugt að festa peninga í stórum húsum á víð og dreif úti um sveitir og dali, ábúendum til byrði eða falls og jafnvel heilsu- spillis, og þjóðinni jafnvel til stórtjóns. Því að peningarnir verða nú ekki aftur teknir, og helzt lítur út fvrir, að fólkið vilji þoka sér saman, hafa litið um sig og njóta þeirra þæginda, sem nútíminn hefir á boðstólum. Finnst mér eðillegast, að smá sveitaþorp með smáum húsum, görðum og túnblettum verði úrræðið að sinni, og gæti þá svo farið, að steinhúsin í afdölum yrðu að sjá á bak síðustu íbúunum. Flateyjar. Húsakynni eru hér heldur í lakara lagi og illa við haldið vegna efnaskorts. Vatnsból ekki góð. Á því er þó ekki auðvelt að ráða bætur. Bíldudals. Húsabætur eru þær helztar, að í Bíldudal var reist 1 Htið íbúðarhús úr timbri. í Dalahreppi var reist lítið skólahús fyrir börn í Hvestu. Er það hús lýst með rafmagni. Þá hafa Dalamenn reist stórt og vandað sláturhús með viðfestu vörugeymsluhúsi í Bakka. Það hús er úr steinsteypu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.