Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1934, Page 81

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1934, Page 81
79 ilisfeðrum sem öðrum. Allar brýnustu þarfir verða að víkja fyrir þessari óhóflegu eyðslu. Kaffinautn er mikil, og sætar kökur eru not- aðar í óhófi. Hesteyrar. Héraðsbúar eru bindindissamir, neyta fæstir áfeng'is og enginn til muna. Kaffi er mikið drukkið. Tóbak notar fjöldinn. Miðfi. Áfengisnautn er alltaf talsverð á samkomum, einkum meðal yngra fólks. Blönduós. Áfengisnautn er hér lítil og brugg ekki, svo að teljandi sé, Tóbaksnautn er aftur á móti talsverð, þar á meðal vindlingareyk- ingar. Kaffi er drukkið mikið eins og annarsstaðar á landi hér, og konurnar hafa á boðstólum við gesti og gangandi sætabrauð af öll- um hugsanlegum gerðum og gæðum, langt fram yfir það, sem góðu hófi gegnir. Sauðárkróks. Það fer ekki leynt, að talsvert er um heimabrugg all- víða í þessu héraði, enda fer drykkjuskapur vaxandi, sérstaklega meðal yngra fólks. Danssamkomur eru útbreiðslustaðir, þar sem ung- lingarnir læra að reykja og drekka. Þær eru afartíðar, bæði í sveit og kauptúnum, t. d. nær því á hverju kvöldi hér í kauptúninu. Truflar fólk, sem sækir þessar samkomur, mjög oft svefnfrið manna. Vín- nautn hefir stóraukizt síðan leyfður var innflutningur á sterkum vínum, þrátt fyrir litla kaupgetu. Öxarfi. Tóbak er mikið notað. Af hinni yngri kynslóð aðallega reykt. Munntóbaks- og neftóbaksneyzla minnkar við fráfall hinna eldri. Meiri hluti ungra manna reykir, stúlkur þó ekki teijandi, flestar alls ekki. Kaffineyzla er áreiðanlega minni en fyrir 20—30 árum, og unga fólkið virðist varla vera eins sólgið i kaffi og hið eldra er nú, enda margt, sem lítið drekkur kaffi. Við áfengislöggjöf þá, er verið hefir og enn er í flestu óbreytt, er nálega hvert mannsbarn brotlegt hér, en áfengisnautn lítil. Heimabrugg er útbreitt, og engar líkur til þess, að 40% spíritusblanda á 7 krónur flaskan útrými því. Vopnafi. Kaffi- og tóbaksnautn án efa svipuð og undanfarið og hvorutveggja mjög í hófi. Áfengisnautn ekki teljandi. Mýrdals. Fyrir 2 árum voru nokkrir menn dæmdir fyrir áfengis- bruggun. Síðan hefir verið minna um landadrykkju, en þess í stað er nú farið að tíðkast að drekka suðuspritt. Þó er ég ekki frá því, að áfengisnautn fari heldur minnkandi. Vestmannaeyja. Drykkjuskapur fram að þessu þverrandi, sjálf- sagt meira af getuleysi en innri hvöt vegna óhollustu og skaðsemi áfengis. Keflavikur. Áfengisnautn er töluverð, sérstaklega á öllum opin- berum samkomum. Að minnsta kosti hefir alltaf, er skemmtun hefir verið haldin í sumum sjávarþorpunum, orðið að hafa lögreglu til að halda uppi reglu. Tóbaksnautn er nokkuð almenn meðal æskulýðs, sérstaklega vindlingareykingar og neftóbaksnautn, bæði i munn og nef hjá eldri kynslóðinni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.