Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1934, Side 93

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1934, Side 93
ÍH Þóroddur DaviSsson, AlviSru. Veggjalús var mögnuð í gamla bænum frá 1929. Siðastliðið sumar byggður nýr bær. Bar fyrst ekki á neinu þar, en brátt fór þó að verða vart við veggjalúsina. Var þá bærinn bikaður að innan og þiljað þar yfir. Síðan hefir lúsarinnar eigi orðið vart. Kristján Daviðsson, Bakka. Veggjalúsar varð fyrst vart 1932. Útrýmt með skor- dýradufti — Knock-out — sama ár. Hefir lítið gert vart við sig síðan. í vetur hafa sést 3—4 stykki. Jón Benónýsson, Hjarðardal. Veggjalúsar varð fyrst vart 1916. Fjölgaði eftir það. Ekkert sérstakt gert til útrýmingar. Settur tjörupappi milli þilja á þaki, Bar ekki á veggjalúsinni í 6—1 ár, þar til síðasta sumar. Gísli Sighvatsson, Höfða. Veggjalúsar varð fyrst vart 1931. Skordýraduft hefir verið notað til útrýmingar. Beynist vel. Drepur undir eins þar sem það nær til. Verður nú nær aldrei vart við lúsina. Sighvalur Jónsson, Höfða. Veggjalúsar varð fyrst vart vorið 1928. Byrjað að nota skordýraduft til útrýmingar 1932. Hefir horfið að mestu. Síðan er það notað í hvert sinn, er lúsarinnar verður vart. Guðmundur Guðmundsson, Nœfranesi. Veggjalúsar varð fyrst vart hér i göml- um torfbæ, 1898. Engar tilraunir gerðar til 1907. Bærinn þá rifinn, fluttir burtu allir moldar- og grjótveggir. Byggt nýtt hús, að mestu úr timbri. Var siðan ekki til á tímabilinu frá 1907—1915. Barst ]>á hingað aftur. Siðan gert ýmislcgt til útrýmingar. Sjóðandi vatni sprautað i rifur, svefníbúð klædd með pappa, málað, brent forma- lini, notað skordýraduft. Arangur af þessu öllu eigi annar en sá, að úr hefir dregið lúsinni. Er þó til í húsinu nú. Bjarni Kristjánsson, Nœfranesi. Fyrst varð vart við veggjalús 1923. Þótt eitt og annað væri reynt, mátti heita óverandi hér, þar til 1931, að ég sprautaði með Knock-out-dufti. Síðan hefir ástandið verið betra, með því að sprauta árlega — jafnvel alveg horfið i bili. En til er veggjalúsin enn. Steinjrór Guðmundsson, Lamhadal. Veggjalúsar varð vart fyrir rúmu ári. Spraut- að með skordýradufti. Við sprautunina hvarf lúsin i bili, en til mun hún vera enn, þótt lítið beri á henni. Sigurður Jónsson, Innri-Lambadal. Fluttist hingað 1925. Þá var hér fullt af veggjalús. Byggt nýtt steinsteypuhús 1930. Síðan hefir hún ekki sést. Bjarni Sigurðsson, Innri-Lambadal. Veggjalúsar varð fyrst vart fyrir 6 árum, Hefir verið reynt að sprauta með steinolíu, baðlyfi og sterku sápuvatni. Hefir borið töluverðan árangur í bili. í haust var sprautað með skordýradufti. Lúsin hefir ekki sézt síðan, en að öllum líkindum er hún þó enn til. Heimili. sem eigi hafa svarað, en kunnugt er um, að veggjalús er á: Gerðhamrar. Hefir eflaust verið þar lengi, í gömlu og gisnu timburhúsi með torfveggjum. Var svo mögnuð þar fyrii- nokkrum árum, að búendur töluðu um að flytja af bænum. Hefir verið notuð formalíngufa, Flitvökvi og Knock-out í útrým- ingarskyni. Haldizt í skefjum síðan. Rani. Varð vart fyrir 2 árum og eigi lítið. Notað Knock-out. Haldizt í skefjum. Stóri Garður. Varð vart fyrir nokkrum árum. Til útrýmingar notað formalín- gufa, FTit-vökvi og Knock-out. Því nær horíið, en tekur sig upp aftur. Gxlóra. Hefir að likindum verið þar í mörg ár. Haldið í skefjum með lysólblöndu og síðan með Knock-out. I Þingeyrarhreppi hefir aðeins borið á veggjahis á cinum bæ, sem er Hvammur. Barst þangað með bóndanum, er stundaði vinnu í Framnesi fyrir 30—40 árum. Til útrýmingar notuð formalíngufa, Flit-vökvi og Knock-out. Helzt í skefjum. Eru þá eftir 19 bæir í Mýrahreppi, sem lúsin hefir eigi borizt á. Þó mun eigi vert að fullyrða, að allir þessir bæir séu lausir við hana. Samkvæmt skýrslu bóndans frá Næfranesi, virðist veggjalúsin hafa borizt þangað fyrir aida- mót. Fram undir 40 ár eru því liðin síðan. Útbreiðslan virðist hafa gengið ótrúlega liægt, þar sem bændur telja hana flestir komna á siðustu árum. Getur það stafað !>f ókunnugleika ábúenda, þar sem á flestum þessum jörðum hafa orðið ábúenda- skipti. Undarlegt er, að bændur á Höfða telja hana komna fyrir fáum árurn, þar sem hvalveiðastöðin var við túngarðinn hjá þeim. Þó hafa þar eigi orðið ábúenda- skipti. Síðasti bæri nn, sem getið er um í skýrslunni, Hvammur, er i Þingeyrar- l'reppi. Hefir veggjalúsar hvergi orðið vart annarsstaðar í þeim hreppi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.