Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Síða 29
27
Vestmannaeijja. Mjög næmur faraldur gekk hér upp ur árainótum,
mest í janúar, fremur vægur, en gekk hratt yfir. F*áir vitjuðu læknis,
en lágu 1—2 daga. Fengu sumir lungnabólgu upp úr faraldri þessum.
Ýmsir fengu og otitis media og þráláta conjunctivitis.
Rangár. Flest tilfelli í börnum innan við 12 ára og svo nokkur til-
felli í fullorðnum karlmönnum, sem eru með langvarandi kvefsótt
að vetrinum. Vill oft verða úr henni lungnabólga, ef menn verða fyrir
kulda eða einhverju hnjaski. Öllum sjúklingunum gefnar sulfadíazín-
töflur, og verkuðu þær í flestum tilfellum mjög vel.
Iíeflavíkur. Barst hingað frá Reykjavík. Var væg og fjaraði fljótt
út aftur.
10. Mislingar (morbilli).
Töflur II, III og IV, 10.
Sjúklingafföldi 1935—1944:
1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944
Sjúkl......... 16 8245 163 1 1 14 „ 1 6616 540
Dánir ........ „ 55 5 „ „ „ „ „ 18 „
Nokkrar eftirhreytur faraldurs frá fyrra ári, einkum á Akureyri og'
í nágrenni, svo og á Austfjörðum. Virtust útdauðir í maímánuði.
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Skrásettir eru aðeins 2 sjúklingar, hinn fyrri í febrúar og
hinn síðari í apríl. Voru þetta piltur og stúlka, bæði um tvítugt, utan-
bæjarfólk. Mislingarnir náðu engri útbreiðslu, sennilega vegna þess
að þeir höfðu gengið hér næsta ár á undan og fátt af fólki hér því
móttækilegt fyrir þá.
Akureyrar. Nokkrar eftirhreytur af mislingafaraldrinum, sem gekk
hér á árinu 1943, á tveimur fyrstu mánuðum ársins. Aðallega skóla-
fólk, sem sjúkdóminn tók og varð í sumum tilfellum mjög mikið
veikt. Má einkum segja það um nemendur Menntaskólans, sem sumir
hverjir fengu mjög þunga mislinga, án þess þó að noklcur dæi úr þeim
eða afleiðingum þeirra.
Höfðalwerfis. Mislingar bárust hingað í maímánuði. Stúlka tók þá
á Akureyri og smitaði dóttur sína. Annað ekki.
Regkdæla. Eftir áramótin bárust mislingar nokkrum sinnum inn i
héraðið, en náðu aldrei neinni útbreiðslu.
Segðisff. Eins og getið var um í fyrra árs skýrslu, bárust hingað
mislingar frá Norðfirði í desember (1943). Smituðust 3 heimili um
og eftir áramót. Tókst að stöðva frekari útbreiðslu veikinnar, og dó
hún út í febrúar.
Norðff. í janúar — eftirhreytur af sóttinni frá fyrra ári.
Beruff. Bárust til Breiðdalsvíkur frá Reykjavík með innanhéraðs-
manni, sem farið hafði snögga ferð til Reykjavíkur. Tók flesta bæi á
Breiðdalsvík. Með vörnum tókst að koma í veg fyrir, að þeir bærust
lengra inn í Breiðdalinn. Flestir sjúklinganna allþungt haldnir, nema
börnin. 2 fengu lungnabólgu, sem batnaði fljótt við súlfalvf. Eng-
inn dó.