Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Page 35
33
17. Svefnsýki (encephalitis lethargica).
Töflur II, III og IV, 17.
Sjúklingafíöldi 1935—1944:
1935 1936 1937 1938 1939 1910 1941 1942 1943 1944
Sjúkl........ 6 3 15 2 5 3 2 3
Dánir ....... 3 „ 1 „ „ 3 4
Veikin ekki skráð á þessu ári og þó getið um eitt mannslát af völd-
um hennar.
Læknar láta þessa getið:
Blönduós. Varð rúmlega fimmtugum manni að bana.
18. Heimakoma (erysipelas).
Töflur II, III og IV, 18.
Sjúklingafíöldi 1935—1944:
1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944
Sjúkl........ 122 59 72 62 65 56 96 69 46 33
Dánir ....... 4 4 3 2 „ 2 2 „ 1 „
Skráðum heimakomusjúklingum fer fækkandi, og rná vera að þakka
hinum nýju ígerðarvarnarlyfjum, en víst mun rétt, sem héraðslæknir-
inn í Reykjavík tekur fram, að skráningu sé hér ærið áfátt.
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Vafalaust koma hér ekki öll kurl til grafar.
Borgarfí. Aðeins 2 sjúklingar. Batnaði fljótt við súlfanílamið.
Hóls. 2 sjúklingar með heimakomu i andliti. Notuðu tabl. sulfa-
thiazoli. Batnaði fljótt. 3. sjúklingur fékk töluvert útbreidda heima-
komu á framhandlegg. Fékk sömu meðferð og hinir. Batnaði.
tsafí. Fá tilfelli, öll væg, enda súlfalyf gefin strax í byrjun.
Hólmavíkur. Stúlka skar sig á Ijá. Fékk erysipelas upp fyrir hné.
Maður og drengur fengu erysipelas faciei út frá nef- og varasári.
Súlfanílamíð dugði öllum.
Ólafsfí. Skjótur bati við prontosihneðferð.
Akuregrar. Nokkur tilfelli, en ekkert alvarlegt.
Þistilfí. Nokkur tilfelli. Súlfadíazín óbrigðult.
Berufí. 1 tilfelli (faciei). Batnaði í fyrstu fljótt við súlfadiazin,
en tók sig tvisvar upp aftur.
19. Þrimlasótt (erytliema nodosum).
Töflur II, III og IV, 19.
Sjúklingafíöldi 1935—1944:
1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944
Sjúkl........ 15 13 10 12 13 26 21 11 17 23
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Aðeins 1 tilfelli hefur verið tekið á farsóttarskýrslur. Aftur
á móti hafa 6 nýir sjúklingar verið teknir á berklaskýrslur vegna
þessa kvilla.
5