Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Page 57
55
Hofsós. 3 sjúklingar létust á árinu
Svarfdæla. 69 ára lcarlmaður með ca. recti, banamein.
Ólafsfj. 1 kona frá árinu 1943 með sarcoma orbitae dó í ársbyrjuu.
1 karl með tumor malignus vesicae innfluttur í héraðið. Annar karl
með ca. oesophagi.
Akureyrar. Læknar hafa ekki getið um nein tilfelli á mánaðarskrám,
en samkvæmt læknabókum sjúkrahúss Akureyrar hafa komið þangað
14 sjúklingar á árinu, haldnir þessum sjúkdómi, sem ekki hafa verið
skráðir áður.
Höföahverfis. 1 maður dó úr krabbameini i maga. Var hann 62 ára.
Reijkdæla. 2 sjúklingar dóu á árinu, karlmenn 46 og 55 ára.
Vopnafj. Karl og kona með ca. ventriculi. Enn fremur kona með ca.
mammae. Ekki skurðtæk.
Sei/ðisfj. 4 sjúklingar dóu á árinu, 2 úr læknishéraðinu og 2 utan
héraðs.
Norðfj. 53 ára verkamaður hafði ca. intestini, einrænn einsetumað-
ur, sem leitaði ekki læknis, fyrr en 2—3 vikum áður en hann dó.
62 ára sjómaður hafði ca. auris sinistrae.
Fáskrúðsfj. 1 karlmaður hafði tumor maxillae sinistrae. Var sendur
í Landakotsspítala. Reyndist vera sarkmein. l)ó þar.
Berufj. 3 sjúklingar. Dóu allir á árinu. Voru ekki færðir á niánaðar-
skrár.
Hornafj. 3 dóu á árinu.
Síðu. Kona skráð með ca. maminae. Ég ráðlagði henni að leggjast
þegar í sjúkrahús og bauð henni að koma því i kring, en hún hefur
ekki sinnt því. 1 sjúklingur úr Öræfum, sem ég hef ekki skráð á
mánaðarskýrslu, leitaði til mín síðast liðið vor. Hann hafði haft sár
á neðri vör í 4 ár. Ég sendi hann þegar í Landsspitalann. Þar var þetta
skorið burt og reyndist vera cancer.
Vestmannaeijja. Kona með brjóstkrabba neitaði skurðaðgerð, með-
an meinið var hníftækt, og dró það hana til bana á 4. ári.
Rangár. 4 sjúklingar skrásettir á árinu, og er það sízt meira en
venjulega. Einn þeirra var þriggja ára drenguf undan Eyjafjöllum.
Var með krabbamein út frá nýrum, lengi í röntgen, en stoðaði ekki.
Dó á árinu. Hinir 3 voru eldra fólk, 2 karlmenn og 1 kona, öll með ca.
ventriculi. Dóu öll á árinu.
Grímsnes. 2 sjúklingar, báðir með ca. ventriculi. 3. sjúklingur-
inn, kona með ca. mammae, var skorin upp i Reykjavík fyrir ári
siðan.
Keflavikur. Margir deyja úr krabbameini. Er það flest gamalt fólk,
lengi búið að ganga með veikina. I 7 tilfellum um ca. ventriculi að
ræða.
9. Drykkjuæði (delirium tremens).
Töflur V—VI.
S júklingafjöldi 1935—1944:
1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942
5 1 2 „ 1 2 2 „
Sjúkl.
1943 1944
3 ....1