Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Page 58
56
Er að eins getið í einu héraði (ísafj.), en mun sífellt mjög vantal-
inn kvilli, og er hending, að hann komi á mánaðarskrá í Reykjavík,
en þar mundi hans helzt von.
C. Ýmsir sjúkdómar.
1. Algengustu kvillar.
Hafnarfi. Algengustu sjúkdómar eru blóðleysi, meltingartruflanir,
gigt, taugaveiklun, höfuðverkur o. s. frv. Annars virðist fólk yfir-
leitt mjög kvartsárt og kvartar oft um lítið og óverulegt.
Borgarfj. Algengustu kvillar tannskemmdir, þá slys, ígerðir og
bráðar bólgur, gigt, taugveiklun, meltingarkvillar, húðsjúkdómar.
Borgurnes. Fjölmennustu flokkar sjúklinga þetta ár eru: Tann-
sjúklingar 160 (teknar 320 tennur), farsótta 159, húðsjúkdóma 93,
gigtar 93, meltingarfæra 78, tauga 78. fgerðir 67. Slys 159.
Dala. Þetta venjulega: tannskemmdir (63 sjúklingar, 259 tennur
dregnar), „gigt“ ýmiss konar og „taugaveiklun“. Meltingarkvillar
(hypersecretio acida 7, ulcus ventriculi 3, cancer ventriculi 4, obsti-
patio chronica 8).
PatreksfJ. 202 með ýmsar farsóttir, 114 meiðsli, flest smá, 154 með
bólgur eða igerðir, 256 með tannskemmdir.
Bíldudals. Mín hafa leitað á árinu sjúklingar með tannskcmmdir
57, slys ýmiss konar 32, ígerðir og bólgur 42, gigtarsjúkdóma 31,
húðsjúkdóma 16, meltingarfærasjúkdóma 23, blóðsjúkdóma 24, augn-
sjúkdóma 14, háls-, nef- og eyrnasjúkdóma 18, kvensjúkdóma 12,
þvagfærasjúkdóma 8, hjartasjúkdóma 6, lungnasjúkdóma 5, æxli góð
og illkynjuð 13, auk farsótta.
Flateyrar. Farsóttir 153, slys og ígerðir 96, tannsjúkdómar 110,
sjúkdómar í hjarta og æðakerfi 25, í meltingarfærum 23, í þvagfærum
18. Töluvert ber á gigt og taugaveiklun.
Hólmavíkur. Eins og fyrr tannskemmdir, gigt, magakvillar (gast-
ritis), blóðleysi, taugasjúkdómar, húðkvillar og alls konar smáslys.
Miðfj. Tannskemmdir, taugaveiklun og gigt.
Blönduós. Algengasti kvillinn sennilega tannáta, sem er sameigin-
leg fyrir alla aldursflokka frá barnsaldri til elliára. Þó talsvert mis-
munandi eftir sveitum. Meltingartruflanir einnig algengar og maga-
kvef þó miklu tíðara en magasár.
Sauðárkróks. Farsóttir og aðrir sjúkdómar á mánaðarskrá 823. Er
l*að með allra fæsta móti og næstum helmingi færra en síðast liðið
ár, tannskemmdir 205, slys alls konar 147, ígerðir og bráðar bólgur
97, tauga- og gigtarssjúkdómar 91, blóðsjúkdómar 82, meltingarkvillar
70, húðsjúkdómar 59, augnsjúkdómar 54, kvensjúkdómar 36, háls-, nef-
og eyrnasjúkdómar 35, hjarta- og æðasjúkdómar 22, nýrnasjúkdómar
20, lungnasjúkdómar 12. Sjúklingar aðstoðarlæknis héraðslæknis að-
eins taldir með í upptalningu farsóttartilfella.
Hofsós. Gigt, meltingarsjúkdómar, tannskemmdir og allmikið um
húðkvilla (eczema).