Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Blaðsíða 74
72
Keflavikur (516). Af kvillum skólabarna eru tannskemmdir lang-
algengastar. Kvefsótt 26, eitlaþroti á hálsi 99, stækkaðir kokeitlar 19,
hryggskekkja 25, psoriasis 1. Reynt var að afhisa öll börn með nit.
Þó kom síðar um veturinn lúsafaraldur upp í einum skólanum, og
varð að gera sérstakar ráðstafanir. Þrátt fyrir þessa kvilla voru
börnin hraustleg útlits yfirleitt.
E. Aðsókn að læknum og sjúkrahúsum.
Um tölu sjúklinga sinna og fjölda ferða til læknisvitjana, annað
hvort eða hvort tveggja, geta læknar í eftirfarandi 25 héruðum:
Tala sjúkl. % af héraðsbúum Ferðir
Borgarfj 810 63,4 155
Borgarnes . . 1166 74,2 150
ólafsvíkur 175 49,4 11 (3 mán.)
Dala 493 35,7 80
Patreksfj .. 1560 102,6 28
Flateyrar . . 578 49,3 —
Hóls 500 71,3 —
Hólmavíkur . .. . 655 50,6 62
Miðfj ?o 8 47,9 93
Blönduós — 115
Sauðárkróks .. 2125 88,5 90
Ólafsfj 455 49,8 —
Akureyrar .. 9898 111,2 376
Höfðahverfis 600 110,7 84
Reykdæla — — 149
Vopnafj 420 56,8 38
Seyðisfj . . 1560 154,8 —
Berufj 194 23,0 31
Hornafj 490 42,7 48
Síðu 396 47,0 —
Vestmannaeyja — ca. 80,0 —•
Rangár . . 1796 59,8 182 (ferðir hér-
Eyrarbakka . . . . .. 6037 180,3 308 aðslæknis
Grímsnes .. 1128 65,7 139 sjálfs á %
Keflavíkur — — 340 ári).
Sjúklingafjöldinn í þessum héruðum (í Ólafsvíkurhéraði um-
reiknaður til heils árs) er til uppjafnaðar 85,9% af íbúatölu hérað-
anna í árslok og er nokkru minni en síðast liðið ár (90,4%). Fjöldi
læknisferða er svipaður og árið fyrir, eða til uppjafnaðar í héraði
141,8 (142,5).
Á töflum XVII og XVIII sést aðsóknin að sjúkrahúsum á árinu.
Legudagafjöldinn er lítið eitt meiri en árið fyrir: 413175 (405632).