Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Page 78
76
karl, er nýlega var orðinn blindur af glaucoma. Fleiri alblinda sjúk-
linga sá ég ekki í ferðalaginu. Undir aðra sjúkdóma eru færðir sjúk-
lingar með ýmsa sjúkdóma í retina, aðallega arteriosclerotiskar breyt-
ingar og ör eftir gamlar blæðingar af ýmsum uppruna.
4. Sveinn Pétursson.
í Vestmannaeyjum dvaldist ég frá 1.—10. júní og skoðaði 120
sjúklinga. Var að venju _ mestmegnis sjónlagstruflanir. 1 sjúkling
fann ég með byrjandi glaucom á öðru auga, er ekki liafði verið at-
hugað áður. Hann fékk eðlilegan þrýsting eftir 4 daga pílokarpín-
meðferð, og lét ég hann því hafa þá meðferð fyrst mn sinn. 3 slcoð-
aði ég með þráláta keratitis herpetica og tók 1 þeirra með mér til
Reykjavíkur. Ég leit einnig á steinblindan mann, er hafði lent í tré-
sþíritusóhamingjunni í Vestmannaeyjum sumarið 1943, og hafði hann
atrophia papillarum á hæsta stigi og enga von um bata. I Vík í Mýr-
dal dvaldst ég 10. júlí og skoðaði 21 sjúkling, á Stórólfshvoli 12. júlí
og skoðaði 17 sjúklinga, á Eyrarbakka 13. júlí og skoðaði 16 sjúk-
linga. Á þessum stöðum var ekkert sérstakt að athuga. A leið minni
úr Færeyjaförinni kom ég við í Vestinannaeyjum seinast í nóvember,
og fyrir tilmæli héraðslæknisins tók ég þar á móti sjúklingum í 4
daga og rannsakaði 50 sjúklinga.
Að öðru leyti láta læknar þessa getið:
Síðu. Enginn augnlæknir kom hér, og kvarta margir sárt undan
því, einkum gamalt fólk, sem ekki er fært til langferða.
Vestmannaeyja. Auk augnlæknis ferðaðist hingað háls-, nef- og
eyrnalæknir (Eyþór Gunnarsson), dvaldist hér um vikutíma og tók á
móti sjúklingum. Ferðir þessar eru vinsælar af héraðsbúum.
IV. Barnsfarir.
Töflur XII—XIV.
Á árinu fæddust samkvæmt tölum Hagstofunnar 3213 lifandi og
94 andvana börn.
Skýrslur ljósmæðra geta fæðinga 3161 barna og 60 fósturláta.
Getið er um aðburð 3147 barna, og var hann í hundraðstölum,
sem hér segir:
Höfuð bar að:
Hvirfil ...............
Framhöfuð .............
Andlit ................
Sitjanda og fætur har að:
Sitjanda . . . ........
Fót ...................
Þverlega ................
92,50 %
1,91 —
0,38 — 74,79 %
3,78 —
1,14— 4,92 —
....... 0,29 —