Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Page 86
84
tilskildum læknisvottorðum. Um takmörkun barneigna er það að
segja, að mjög mun það sjaldgæft hér, að nokkur leiti læknisráða
í því skyni, og á þessu ári hafa læknar héraðsins ekkert haft af slíku
fólki að segja.
Höfðahverfis. 7 sinnum vitjað til sængurkvenna, þrisvar í forföll-
um ljósmóður, í eitt skipti vegna stórhríðar og ófærðar, tvisvar vegna
þess, að konurnar óskuðu eftir deyfingu, og eitt sinn vegna tvíbura-
fæðingar, vantaði ca. 1% mánuð upp á tímann. Fæðing fyrra barns-
ins eðlileg, en seinna barnið ekki fætt eftir 4 tíma, og var ég þá sóttur.
Konan var orðin þreytt og sóttlítil. Barnið bar rétt að. Konunni gefið
pitúitrín, en þrátt fvrir það óx sóttin lítið. Við exploratio vaginalis fannst
liöfuð ofarlega í grind og placenta að nokkru leyti fyrir höfðinu, en þó
svo mikið rúm í grindinni, að fæðing átti að geta gengið eðlilega. Pla-
centa í einu lagi, svo að ekki kom til rnála að losa liana. Sprengdur var
vatnsbelgur. Er konan vaknaði úr svæfingu, er hún hafði fengið,
glæddust samdrættirnir, og litlu síðar fæddist líflítið sveinbarn, sem
þó hresstist fljótt eftir lífgunartilraunir. Hálftíma síðar fæddist fylgj-
an, sem var ein fyrir báða tvíburana. 2 fósturlát, annað ca. 2—3
mánaða, hitt á 8. mánuði. Fóstrið hafði verið dautt í ca. 8—10 daga,
fæðing eðlileg, fóstrið vanskapað, spina bifida og fingur einnig van-
skapaðir. 15 dögum síðar, er konan var komin á fætur, félck hún
skyndilega hita, 39°, og' var gefið prontosíl. Hresstist hún fljótt.
Engar vitanlegar orsakir til fósturlátanna. Enginn abortus provocatus.
Getnaðarverjur munu lítið notaðar.
Húsavíkur. Ljósmæður geta engra fósturláta, en ég hef orðið þeirra
var 6 sinnum. Allt giftar konur. Aldur fósturs frá 2—3 mán. Allar
konurnar lifðu.
Þistilff. Viðstaddur 19 fæðingar. Tilefni aðallega svæfingar. 1 kona
fékk lungnabólgu eftir fæðingu. Batnaði við súlfadíazín.
Vopnaff. Vitjað ti! II sængurkvenna á árinu. 9 af þessum konum
fæddu sjálfkrafa, en fengu flestar lítils háttar deyfingu, auk annarra
smáaðgerða, svo sem að fylgju var þrýst út, saumaðar lítils háttar
spangarrifur, pitúitrín gefið eftir á o. s. frv. Ein af þessum koirurn fékk
alvarlega blæðingu. Ekki tókst að þrýsta fylgju út, og var hún því
losuð með hendi. Konan var mjög kvefuð, er hún ól barnið. Fékk á
eftir pneumonia crouposa í bæði lungu og var hætt komin, en lifði
þó af. 2 börn voru tekin með töngum hjá konum, sem fæddu í fyrsta
sinn. Önnur sú fæðing gekk afar seint, og var beðið eins lengi og tök
voru á. Hin konan mundi liafa fætt sjálfkrafa, ef friður hefði fengizt
til hiðar.
Fljótsdals. Um fósturlát veit ég engin á árinu. Iðulega er þess farið
á leit við mig að framkvæma abortus provocatus, en ég hef ekki séð
ástæðu til að sinna því. Hins vegar hef ég oft leiðbeint hjónum um
takmörkun barneigna.
Seyðisff. 19 konur ólu börn á árinu, og heilsaðist öllum vel. Engin
ljósmóðir var í kaupstaðarumdæminu. Þurfti því læknir að sitja yfir
9 konum. Fæddu þær allar í sjúkrahúsinu. Sennilega hefði læknir
verið sóttur til þriggja, þar sem aðgerðar þurfti við, einu sinni vegna