Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Page 89
87
V. Slysfarir.
Slysfaradauði og sjálfsmorð á síðasta áratug teljast, sem hér segir:
1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944
Slysadauði . 90 102 51 75 55 93 195 117 127 124
Sjálfsmorð . 8 15 9 15 12 12 8 13 12 7
Slysfaradauði er svipaður 3 síðast liðin ár og miklum mun minni
en hann varð mestur á ófriðarárunum (1941), þó að enn sé hann
drjúgum meiri en hann var upp og ofan fyrir ófriðinn.
Læknar Iáta þessa getið:
Rvík. Árið var enn meira slysaár en næstu ár á undan. Ægilegust
voru sjóslysin. Hin mestu þeirra voru þau, er togarinn Max Peinber-
lon fórst með allri áhöfn 11. eða 12. janúar, svo og er e. s. Goðafoss
fórst af hernaðarástæðum 10. nóv. skammt frá Garðskaga. Með Max
Pemberton fórust 29 menn, og af þeim voru 24 heimilisfastir hér í
bænum. Með e. s. Goðafossi fórust 14 skipverjar, allir búsettir hér í
bænum, og 10 farþegar, þar af 7 bæjarbúar. Með öðrum skipum
fórust eða féllu út af þeim og drukknuðu 7 menn heimilisfastir hér í
bæ. Þar að auki drukknuðu járnsmiður, búsettur hér, af báti, er var
á skemmtisig'lingu vestur á Dýrafirði, og 4 ára gömul stúlka héðan
úr bænum, sem féli út af m. s. Esju, er skipið var á leið frá Vest-
mannaeyjum til Reykjavíkur. Samtals eru það því 54 manns, heimilis-
fastir hér í bæ, sem vitað er með vissu um, að hafi drukknað á árinu.
Auk þess er rétt að geta hér þriggja manna til viðbótar. Vélstjóri,
talinn heimilisfastur í Ólafsvík, féll hér í höfnina, er hann var á
leið út í skip sitt, og drukknaði, mun hafa verið ölvaður. Roskinn
maður, sem bjó í Hjálpræðisherkastalanum, féll drukkinn í höfnina.
Náðist og komst til meðvitundar. Var lagður í Landsspítalann, en and-
aðist þar skömmu síðar. Krufning leiddi í ljós heilablæðingu. 1 ág'úst-
mánuði hvarf bifreiðarstjóri, búsettur hér í bæ. Lík hans fannst tæp-
um mánuði síðar rekið við Sólmundarhöfða, nálægt Akranesi. Senni-
leg'a hefur hér verið um sjálfsmorð að ræða. Mikið kvað að umferða-
sljrsum á þessu ári, eins og' undanfarin ár. Biðu 6 manns, búsettir
hér í bænum, bana vegna þeirra: 2 börn urðu fyrir bifreiðum, 8 ára
drengur, fract. cranii, og 9 ára stúlka, fract. pelvis. Piltur 18 ára féll
af baki vörubifreiðar, er hún tók beygju, og beið samstundis bana af
fract. cranii. Aldraður maður héðan úr bænum fannst örendur á
veginum hjá Gerðum í Garði. Krufning leiddi í Ijós hryggbrot. Það,
sem síðast var vitað til hans, var það, að hann hafði farið allmjög
ölvaður út úr áætlunarbifreið. Talið sermilegt, að hann hafi orðið
lyrir bifreið. Ungur maður ók með ofsahraða á bifhjóli á húshorn,
hlaut húskúpubrot og lézt þegar í stað. Maður héðan úr bænum, sem
vann við Skeiðsfossvirkjunina norður í Fljótum, féll út úr bifreið
nálægt Hofsósi og beið bana af. Loks má geta um 35 ára gamlan
mann, búsettan i Landeyjum, er varð undir vagni, sem skurðgrafa
var flutt á. Hann var fluttur í Landsspítalann og andaðist þar af
áverkum þeim, er hann hlaut við þetta slys (ruptura lienis, fract.