Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Síða 110
108
var með sama fyrirkomulagi og áður. Rekstrarhalli var stórum meiri en
nokkru sinni fyrr, og er J>ar aðallega um að kenna síhækkandi kaupi,
samfara stórauknum fríum og auðvitað minni afköstuin. í ráði er
að stækka sjúkrahúsið og jafnvel byggja nýtt, sem fengið gæti viður-
kenningu sem fjórðungssjúkrahús.
Beruff. Sjúkrastofa læknisbústaðarins hefur ekki verið notuð á ár-
inu, einkum vegna J>ess, að engin fékkst til þess að hjúkra sjúkling-
um, Jiví að engin hjúkrunarkona er hér, svo og að óiag mikið var á
hitatækjum hússins og vatnsleiðslu. Ekki er og J>ví að neita, að sjúkra-
stofan er á mjög óhentugum stað í húsinu, og meðal annars þess vegna
er lítt fýsilegt að fá þangað sjúkling, nema þvi aðeins, að lífsnauðsyn
beri til.
Síðu. Á síðast liðnu ári var unnið að nokkrum lagfæringum á
læknisbústaðnum. Þær verða J)ó fremur að teljast til viðhalds, sem
hefur verið vanrækt árum saman, en til endurbóta. Miðstöð er í hús-
inu. Ketillinn er góður, en allir ofnar of litlir. Rafstöð fylgir staðnum.
Hún á að geta framleitt 5 k\v, en er ófullnægjandi vegna vatnsskorts.
Tvívegis hefur farið svo á einu ári, að rafmagnslaust hefur verið
vegna frosta, i annað skiptið í 9 daga, en hitt skiptið í 6 daga. Þegar
svo fer, verður að elda allt á olíuvélum, því að ekkert eldstæði er til
vara. Húsið e’r svo illa byggt og' farið, að héraðslæknir hefur stungið
upp á því við nefnd þá, er á að sjá um læknisbústaðinn, að láta enga
gagngerða viðgerð fara fram, en byrja nú í þess stað að safna fé til
nýbyggingar, er sé tiltækt, Jiegar verðlag lækkar. Fyrra atriðið hefur
verið tekið til greina, en um hið síðara veit ég ekki hvernig fer. En
Jiað er fyrirsjáanlegt, að í J>etta hérað fæst aldrei læknir nema eitt
og eitt ár í senn eða jafnvel aðeins að sumri til, ef ekki verður annað
gert en að láta allt fara einhvern veginn.
Vestmannaeijja. Á sjúkrahúsinu engar breytingar gerðar. Barns-
hafandi konur ala orðið börn sin á sjúkrahúsinu, og hefur orðið að
taka herbergi handa þeiin J>ar, því að mörgum konum tekst ekki að
fá húshjálp, á meðan þær liggja á sæng. Stundum hafa verið 4—5
sængurkonur á sjúkrahúsinu í einu. Annars er pláss á sjúkrahúsinu
mjög skammtað til þessa, einkum á vertíð.
Rangár. Nýr læknisbústaður var fullgerður á árinu, og flutti ég í
hann í október, það er mjög sæmilegt hús, 2 hæðir á kjallara. Á neðri
hæð er læknisstofa, lyfjabúð, 2 gestaherbergi og 1—2 herbergi, sem
nota má fyrir sjúklinga,. ef ástæður verða einhvern tíma svo, að fólks-
leysi hamli ekki. Niðri er einnig baðherbergi og vatnssalerni, J>votta-
hús, iniðstöð o. fl. Á efri hæðinni er svo íbúðin, 7 herbergi og eld-
hús. Er hún mjög sæmileg, en helzt til lítil, að minnsta kosti ef
læknirinn rekur búskap, en þess er að vænta, að ég verði síðasti
Jæknir á þessum stað, sem heimskar sig á búskaparamstri.
Keflavíkur. Byrjað á byggingu sjúkrahúss í Keflavík fyrir 21
sjúkling. Komst það undir þak í árslok, en allt útlit fyrir, að stöðva
verði verkið í bili vegna skorts á fé fyrir samtakaleysi hreppanna. Þó
gaf Rauðakrossdeild Keflavíkur á annað hundrað þúsund krónur i
sjúkrahúsið. Sjúkrahúsið í Sandgerði, er starfar á vegum Rauða-
kross íslands, var rekið með svipuðum hætti og áður. Er mikið hag-