Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Page 119
117
D. Matvælaeftirlit ríkisins.
Atvinnudeild Háskólans hefur látið í té eftirfarandi skýrslu um
rannsóknir sínar á matvælum á árinu 1944, að undanteknum rann-
sóknum á mjólk og' mjólkurvörum. (Aðaltölurnar tákna tölu sýnis-
lxorna, er tekin voru til rannsóknar, en svigatölurnar tölu þeirra sýnis-
horna, sem fullnægðu ekki settum reglum.)
Aldinsulta og aldinmauk 2 (0). Aldinsafi, saft og sykurvatn 5
(1: innheldur of lítið af sykri). Ávextir þurrkaðir og í sykurlegi 1 (0).
Brauð 1 (0). Bökunarefni og húðingsduft 24 (1: sýnishorn af eggja-
dufti reyndist vera gulur litur blandaður sterkju). Edik og edikssýra
10 (0). Fiskmeti 5 (0). Gosdrykkir 8 (0). Kaffi 19 (0). Kaffibætir
4 (0). Kakaó og súkkulaði 25 (0). Kjötmeti 44 (0). Kornmatur annar
en brauð 21 (5: í 2 sýnishornum fundust bjöllur og bjöllulirfur af
ættkvíslinni Tribolium, 2 sýnishorn voru menguð framandi efnum,
sem ill lykt var af, og 1 sýnishornið var mengað sóda). Krydd 22
(0). Ostur, þar með talinn mysuostur, 8 (0). Smjör 10 (6: 8 sýnis-
hornin eru mygluð, en af 3 er framandi bragð). Smjörlíki og önnur
matarfeiti, þó ekki smjör, 57 (4 innihalda enga sterkju). Sykur 1 (1:
mengað framandi efnum, sein ill lykt er af). Þvottaefni alls konar
14 (0). Ýmislegt 66 (2:2 sýnishorn af „Dessert Sauce“ eru litað syk-
urvatn með kjörnum og ranglega auðkennd). Samtals 342 sýnishorn,
og þar af gölluð 20, eða 5,8%.
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Rannsökuð voru 40 sýnishorn af gerilsneyddri mjólk. Fitu-
prófuð voru 37 sýnishorn, og' reyndust 2 með minni fitu en 3,15%.
Eitt sýnishorn hafði aðeins 2,75%, enda kom í ljós, að vatn hafði
blandazt saman við nokkra lítra í ógáti og óafvitandi. 6 reyndust hafa
fitu milli 3,15% og 3,5%, en 4 þeirri voru reynd á því tíinabili, sem
slíkt er leyfilegt. Hin sýnishornin reyndust öll yfir 3,5% og' 6 þeirra
4,0% og þar yfir, mest 4,3%. 2 sýnishorn af súrmjólk voru rann-
sökuð, og reyndust þau bæði með heldur lágt fituinagn. Rannsökuð
voru 2 sýnishorn af ógerilsneyddri mjólk frá stöðinni, áður en mjólkin
fór til gerilsneyðingar, og reyndist fitumagn 3,5%, en gerlatalning
1,4 og 1,5 millj., og við cólítíter reyndist annað jákvættí 1/1000 sm3. Gerla-
talning' var g'erð í 30 sýnishornum af gerilsneyddri mjólk, og reyndist
gerlamagnið frá 1000 og upp í 6000000 í sm3. Við cólítíter reyndust
20 jákvæð í 1/10 sm3, 7 jákvæð í 1/100 sm3 og 3 sýnishorn jákvæð
í 1/1000 sm3. Rannsökuð voru 29 sýnishorn af gerilsneyddum rjóma.
Storchspróf var gert á 26, og reyndust þau öll neikvæð. Fita var rnæld
í 28 sýnishornum. Var hún lítið eitt undir 30% í 11 sýnishornum, en
yfir 30% i 17. Meðalfitumagn var 29,8%. Gerlatalning var gerð i 18
sýnishornum. 4 þeirra höfðu 20000—500000, en hin höfðu gerlamagn
frá 1000000—15000000 í sms. Rannsökuð voru 24 sýnishorn af rjómaís.
Fita var mæld í 21 þeirra, og reyndist í 15 þeirra frá 3,3 %—10%.
Hin sýnishornin höfðu fitu ofan við tilskilið fituinnihald. Gerla-
ljöldi reyndist frá 120000—350000000 í sm3. Cólítíter var gerður í 23
sýnishornum og reyndist jákvæður í 1/10 sm3 í 21 sýnishornum, i
1/100 sm3 í 20 sýnishornum og í 1/1000 sm3 i 14 sýnishornum. Mjólk