Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1944, Page 200
198
Að öðru leyti láta læknar þessa getið:
Skipaskaga. Skoðunargerðir framkvæmdar tvisvar sinnum á árinu,
önnur þeirra á sjóreknu líki, en hin á 9 ára telpu vegna ákæru um
skírlífisbrot á barninu.
Akureyrar. Skoðað var lík 26 ára karlmanns, sem framið hafði
sjálfsmorð með því að skjóta sig með fjárbyssu framan í ennið. Þá
voru skoðaðir samkvæmt beiðni ungmennadómstóls 2 14 ára stúlku-
krakkar, sem mök höfðu haft við setuliðsmenn. Einnig voru sam-
kvæmt beiðni bæjarfógeta skoðaðar 3 manneskjur vegna minna háttar
áverka, er þær höfðu fengið, einnig teknar blóðprufur samkvæmt
beiðni bæjarfógeta, 5 til alkóhólrannsóknar vegna bílstjóra og 3 vegna
barnsfaðernismála.
22. Sótthreinsanir samkvæmt lögum.
Tafla XX.
Samkvæmt sótthreinsunarreikningum, er borizt hafa landlæknis-
skrifstofunni, hefur sótthreinsun heiinila farið 308 sinnum fram á
árinu á öllu landinu, og er tíðasta tilefnið nii skarlatssótt (71%), þá
berklaveiki (24%), en önnur tilefni fágæt.
23. Húsdýrasjúkdómar.
Læknar láta þessa getið:
ísaff. Eins og áður voru starfrækt 3 sláturhús. Alls var slátrað
6995 dilkum og 871 fullorðnum kindum. Margt kindanna var hrakið
og skemmt. Töluvert bar á brjósthimnubólgu, sérstaklega í fullorðna
fénu, og þó nokkuð í lömbunum. Flestar fullorðnu kindurnar úr
einstökum sveitum voru sullaveikar. Engar sveitir eða hreppsfélög
gátu talizt alveg saklaus. 5 lömb voru sullaveik. Hér er slátrað fé xir
mestum hluta N.-ísafjarðarsýslu, nokkrum hluta V.-ísafjarðarsýslu
og Barðastrandarsýslu og nyrzta hluta Strandasýslu.
Blönduós. Sjúkdómar gera stöðugt mikinn usla í fé bænda, þrátt
fyrir betri meðferð og ýmiss konar lækningaaðferðir. Það er hér mjög
algengt, að menn bólusetji fé sitt, ekki einungis gegn bráðapest, sem
lengi hefur tíðkazt, heldur gegn lungnapest, sem einnig er farið að
gefa súlfalyf við með góðum árangri, og gegn lambablóðsótt, þar sem
hún gerir vart við sig'. Ormalyf er og almennt gefið til varnar gegn
garnaormum, sem mikið var farið að bera á fyrir nokkrum árum,
en nú gætir miklu minna.
Akureyrar. Umgengni í sláturhúsum yfirleitt góð og aðbúnaður
sæmilegur. Þess hefur verið vandlega gætt, að hundar kæmust
hvergi að eða inn í sláturhúsin, og held ég óhætt að fullyrða, að þetta
tafi tekizt svo vel á undan förnum árum, að hættan á, að hundar
hafi náð í sulli við sláturhúsin sé alveg hverfandi lítil. Á þessu ári
og árinu næst á undan hefur hér verið dýralæknislaust, og er til hins
mesta baga, Læði hvað við kemur lækningu gripa og sömuleiðis vegna
kjöteftirlits þess, sem nauðsynlegt er, að hér fari fram árið um kring
og eðlilegast er, að dýralæknirinn hafi á hendi.