Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1958, Blaðsíða 86
1958
— 84 —
og áSur (sjá HeilbrigSisskýrslur 1957)
voru svaranir óvenjulegar, mjög vægar
og óljósar og miklu tiSari en svo, aS
um venjulega berklasmitun gæti veriS
aS ræSa. Öll þau börn, sem sýndu
svörun, 227 aS tölu, voru síSan rönt-
genrannsökuS. Ekkert þeirra sýndi
einkenni berklasjúkdóms, enda öll
heilbrigS, aS því er virtist, og verSur
því aS álykta, aS hér sé eigi um venju-
lega berklasmitun aS ræSa. Mun verSa
reynt að framkvæma hér frekara próf
síSar með öðrum antigenum, ef skýra
mætti þessar óvenjulegu svaranir á
þennan hátt.
Eins og á siðasta ári er árangur
berklaprófs á skólabörnum í Keflavik
af ofangreindum ástæðum einnig á
þessu ári numinn burt úr skýrslunni.
Röntgenrannsókn þessara barna er
ekki heldur talin með í ofangreindum
rannsóknatölum.
Akranes. 5 sjúklingar eru skráðir á
árinu, þar af 1 endurskráður með tbc.
pulmonum og smitandi. 4 eru nýskráð-
ir: 35 ára hárgreiðslukona með tbc.
pulmonum, einnig smitandi, og 30 ára
kona ásamt 2 drengjum sinum, 2ja og
5 ára, öll með lungnaberkla. Jafn-
framt berklasmituninni fengu dreng-
irnir mislinga og urðu þar af ieiðandi
verr úti. Þriðji sonur þessarar konu
smitaðist ekki. Allir fóru sjúklingar
þessir á berklahæli og eru á batavegi.
Búðardals. Engin nýsmitun, svo að
vitað sé. Sumarið 1957 var barn úr
Ólafsvík á bæ einum á Skarðsströnd.
Um haustið veiktist það af berkla-
veiki. Eá ekki i fyrstu ijóst fyrir,
hvar það hefði smitazt. Síðast i janúar-
mánuði, en þá liafði héraðslæknir í
Ólafsvík átt tal við mig, fór ég út á
Skarðsströnd til að vita, hvort ég fyndi
nokkuð grunsamlegt. Skoðaði ég 57
manns þar í hreppnum. Gat ég ekki
fundið neitt tortryggilegt í þeim hóp,
og öll börn voru neikvæð við berkla-
próf. Skömmu síðar frétti ég, að smit-
un hefði verið rakin til síns uppruna.
Reykhóla. Einn maður kom í hér-
aðið, útskrifaður frá Vifilsstöðum.
Flateijjar. Engrar berklaveiki varð
vart á árinu.
Suðureyrar. Tveir nýir sjúklingar
hafa fundizt með tbc. pulmonum, báð-
ir smitandi í fyrstu. Dveljast á Vífils-
stöðum í árslok.
Súðavíkur. Karlmaður, rúmlega sex-
tugur, féklc í desember siðast liðið ár
inflúenzu og þar eftir hitavellu nokk-
urn tíma. Var hann sendur á Sjúkra-
hús ísafjarðar til rannsóknar. Ekkert
sérstakt mun liafa fundizt, og var hann
sendur heim eftir hálfan mánuð. En
sputum, sem sent hafði verið frá hon-
um til rannsóknar, reyndist jákvætt
við ræktun. Var maðurinn þá sendur
á Vífilsstaði. Öll börn í Álftafirði
höfðu verið berklaprófuð i ársbyrjun
og reynzt neikvæð. Var nú aftur
berklaprófað, sérstaklega þau börn,
sem voru í nágrenni við sjúklinginn.
Reyndust aftur öll neikvæð, nema einn
8 ára drengur, dóttursonur mannsins,
en drengurinn var í fóstri hjá honum.
Við gegnlýsingu á honum fannst eklc-
ert óeðlilegt. Maður þessi hafði unnið
í „Frosta“, og voru þess vegna skoð-
aðir verkamenn og konur í iðjuverinu.
Enginn reyndist athugaverður þar.
Hvammstanga. Hefur ekki orðið
vart, en nokkrir grunsamlegir sjúk-
lingar voru rannsakaðir gaumgæfilega
með tilliti til berkla.
Blönduós. Enginn berklaveikur í
héraðinu, svo að vitað sé.
Hofsós. Tvö börn í fyrsta sinn já-
kvæð við berklapróf. Ræði voru frá
gömlum berklaheimilum, og virtist
ekki um nýsmit að ræða, þar sem
yngri systkin þeirra reyndust neikvæð
við berklapróf. Börn þessi og vanda-
íólk þeirra voru gegnlýst, og kom ekk-
ert tortryggilegt fram.
ÓlafsfJ. Enginn nýr sjúklingur skráð-
ur á árinu. Nú er aðeins eitt barn já-
kvætt i skóla, og er það telpa, sem
bólusett var kornung vegna berkla-
veiki móður.
Akureyrar. Aðeins 1 maður dó úr
berklaveiki á árinu.
Grenivíkur. Eldri maður, sem verið
hafði lasburða um tíma, var sendur
til rannsóknar á fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri. Kom i ljós, að hann hafði
gamalt bris i lungum, en ekki smit.
Var hann sendur á Kristneshæli til
frekari rannsóknar, og dvelst hann
þar enn.