Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1958, Side 147
— 145 —
1958
og sundurtættur á allstóru svæði
að neðanverðu. Auk þess fannst
sprunga í lifrinni, sem dáiítið
hefur blætt úr. Vinstra lærbein er
þverbrotið. BanameiniS hefur ver-
ið hið mikla brot á kúpubotnin-
um og sköddunin á heilavefnum,
sem hefur tætzt í sundur. Auk
þess hefur brotið á kúpubotninum
orðið til þess, að blóð hefur kom-
izt inn í munninn og farið ofan
í lungun, svo að það hefur gert
öndunina mjög erfiða.
7. 27. janúar. S. S. S.-dóttir, 78 ára.
Fannst látin á gólfinu heima iijá
sér. Ályktun: ViS krufningu
fannst mikil kölkun á lokum i
vinstra hjarta (mitralis- og aorta-
lokum) og þrengsli á tilsvarandi
opum. Hefur þetta orsakað mikla
erfiðleika fyrir starfsemi hjart-
ans, sem var stækkað og þanið,
og auk þess leitt af sér iungna-
bjúg. Ofan á þetta hefur bætzt
byrjandi lungnabólga, og hefur
hjartað ekki þolað það aukna
erfiði, sem af því hefur leitt, og
gefizt upp.
8. 8. fcbrúar. Á. S.-son, 51 árs, bréf-
beri. Maginn hafði verið tekinnj
úr manninum, og liafði hann ekkil
tekið á heilum sér síðan. Fannst
látinn á milli húsa i Fossvogi.
Skildi eftir bréf, þar sem hann
gaf i skyn, að hann myndi fyrir-
l'ara sér, og bað um, að líks sins
yrði vitjað á þeim stað, þar sem
það fannst. Ályktun: Krufningin
og efnarannsókn á magainnihaldi
benti eindreg'ið til þess, að um
blásýrueitrun hafi verið að ræða.
9. 10. febrúar. H. S.-son, 66 ára,
verkamaður, HafnarfirSi. Hafði
illkynja æxli i auga (melanoma),
sem þurfti að taka, en hann gat
ekki hugsað sér að missa augað.
Skrifaði dóttur sinni, að hann
vildi heldur deyja en missa aug-
að. Fortölur tveggja augnlækna
reyndust árangurslausar. Maður-
inn hvarf 6. febrúar, og fannst lik
Iians í flæSarmálinu við Hafnar-
fjörð 9. febrúar. Ályktun: ViS
krufninguna fundust greinileg
einkenni um drukknun. Auk þess
fannst illkynja æxli (melanoma)
á stærð við litla rúsínu í hægra
auga, en það var ekkert farið að
breiðast út.
10. 17. febrúar. B. A. G.-son, 22 ára.
Slasaðist á vélbáti, fékk langan
skurð í gegnum magál, svo að
garnir lágu úti. Auk þess áverkar
á höfði og víðar. Ályktun: ViS
líkskoðun og krufningu fannst
mikið svöðusár, sem hafði verið
saumað saman og lá allt frá inn-
anverðu hægra læri og upp í
gegnum nárann og inn i kviðar-
holið og þar upp í Icndina. Hafði
vöðvinn rifnað þar á stóru svæði
frá mjaðmarkambinum. Ekki hafði
sjúklingurinn þó fengið neina lif-
himnubólgu, þó að mikill hluti
garnanna hefði legið frammi sam-
kvæmt lýsingu læknis. Þá var
einnig brotið upphandleggsbeinið
vinstra megin, og brjóstbeinið var
þverbrotið yfir. Enn fremur 4. rif
vinstra megin. Neðri kjálki var
sprunginn og gjökti um miðjuna.
Vísifingur hægri handar var þver-
brotinn, svo að taka þurfti 2
fremstu kögglana af. Enn fremur
fannst mikið mar á tveimur stöð-
um i vinstra lunga, og hafði lung-
að sprungið þar á einum stað og
mikið blætt úr þvi inn í brjóst-
holið. Allir þessir miklu áverkar
hafa sýnilega valdiS þvi, að mað-
urinn hefur fengið lost, sem hef-
ur leitt hann til bana.
11. 3. marz. S. S.-dóttir, 46 ára. Fannst
látin í herbergi unnusta síns með
tvær hnífsstungur undir liolhendi
vinstra megin. Ályktun: ViS
krufninguna fundust 2 stungusár
í holhöndinni vinstra megin, og
hafði annað þeirra stungizt i
gegnum vinstra lungað, en hitt í
gegnum hryggæðina, og hafði það
sýnilega verið tvístungið, og náði
önnur stungan alveg i gegnum
hryggæðina. Stungan í lunganu
hafði farið í gegnum berkjur og
æðar, svo að konan hefur fengið
mikla blóðspýju og blóðið gusazt
út um munn og nef. Stungan í
hryggæðinni hefur fljótt valdið
mikilli blæðingu inn í brjósthol,
19