Úrval - 01.04.1947, Side 12
10
ÚRVAL,
það sé hægt, er sú hætta á, að
frásögn þeirra brjálist mjög af
sef jun frá dávaldinum: Hinn dá-
leiddi segir það, sem hann vill,
að hann segi. Þvílíkur fram-
burður er því mjög óáreiðanleg-
ur, og er oft ómögulegt að
greina að, hvað satt er og hvað
heilaspuni fyrir óafvituð áhrif
frá dávaldinum. Pyrir þær sakir
nær engri átt að leggja slíkan
framburð til grundvallar dómi
eða réttargerðum.
Sef junin skýrir margt í sálar-
lífinu, sem menn furða sig á.
Sumum þykja ýmis fágæt sál-
ræn fyrirbæri ótrúleg og halda,
að þau séu uppgerð, en aðrir
telja þau ,,yfirnáttúrleg“. Skulu
hér nefnd nokkur dæmi um fá-
gæt sálræn fyrirbæri, sem sefj-
un virðist vera fullnægjandi
skýring á. Dáleiðsla eða sjálfs-
sefjun geta dregið úr djúpum
sársauka, a. m. k. stundarkorn,
svo að menn finna varla til
hans. Villimanninum, sem snert-
ir vanhelgan hlut (tabou), þ. e.
hlut, sem bannað er að snerta í
trúarbrögðum hans, getur orðið
svo mikið um, að hann leggst í
bæli sitt, neytir einskis, veslast
upp og deyr. Honum verður að
trú sinni, og enginn mannlegur
máttur fær bjargað honum, ef
ekki tekst að veikja trú hans á
mátt hins bannhelga hlutar.
Álög, heitingar, áhrínsorð, o. fl.,
sem við þekkjum nú frekar af
afspurn og sögusögnum en
reynslu, hafa fengið mátt vegna
trúar þess manns, sem fyrir
þeim varð. Ef maðurinn, sem
heitazt er við, trúir á mátt
þeirra heiftaryrða, sem við hann
eru sögð, geta þau hrinið á hon-
um, en annars ekki. Við þetta
bætist, að sá, sem heitazt er við,
hefur venjulega gert rangt, veit
upp á sig sök gagnvart manni
sér minni máttar, og því slær
samvizkan hann. Meðan trúin á
mátt heitinga var sterk og al-
menn, voru vafalaust mörg sönn
dæmi þess, að heitingar hrinu á
mönnum, en nú, þegar trúin á
mátt þeirra er nær algerlega
horfin, er máttur þeirra einnig
úr sögunni. Það er fyrir sefjun,
að auðvelt reynist að blekkja
menn og brjála dómgreind
þeirra á ,,andafundum“, sbr.
slæður og grímur miðils nokk-
urs, er varð uppvís í Reykjavík
að stórfelldum svikum fyrir
nokkrum árum, og meðal hjá-
trúarfullra manna er ekkert
hægara en að koma af stað
draugagangi og alls konar undr-
um.