Læknaneminn - 01.04.1994, Page 23
Tafla 3. Orsök greiningar hjá sjúklingum sem
greindust fyrir tilviljun með nýrnafrumu-
krabbamein á Islandi 1971-1990 (n=46 karlar
og 28 konur) (3).
Nýrnamynd n 36 % 49
Smásæblóðmiga 8 11
Við aðgerð ákviðarholi 7 9
Omun 5 7
Þreifing á kvið 5 7
Tölvusneiðmynd afkvið 4 5
Polycytemía 3 4
Hækkað sökk 3 4
Lungnamynd 2 3
Slagæðamynd 1 1
74 100
(incidental diagnosis) (3). Aðallega er þá um að ræða
æxli sem greinast við myndrannsóknir, svo sem
nýmamyndatöku, ómun eða tölvusneiðmyndatöku sem
gerð er vegna óskyldra vandamála, oftast vegna
uppvinnslu á sjúkdómum í neðri þvagvegum (15,16).
I þessum hópi eru einnig sjúklingar sem greinast fyrir
tilviljun með hækkað sökk eða smásæja blóðmigu
(tafla 3).
MYNDRANNSÓKNIR
(TAFLA 4)
Nýrnamynd (IVU) er fyrsta rannsókn ef grunur
leikur á illkynja æxli í nýra (17). Langoftast eru
Mynd 6a. Slagæðamyndaf'nýrnafrumukrabbameini.
A myndinniséstœðaríkjyrirferðen umhverfis hana er
eðlilegur nýrnavefur.
Tafla 4. Helstu myndrannsóknir á nýrum ef
grunur leikur á nýrnafrumukrabbameini:
1. Nýmamynd
2. Tölvusneiðmynd
3. Ómun
4. Slagæðamynd
5. Segulómun
fyrirferðir í nýra góðkynj a blöðmr (cystae) en stundum
getur verið erfitt að sjá á nýmamynd hvort um þétta
eða hola fyrirferð er að ræða. Ef fyrirferðin hefur
reglulegar útlínur, án kalkana og óveruleg tilfærsla er
á safnkerfi nýrans em mestar líkur til þess að um sé
að ræða góðkynja blöðm. Þá er réttast að óma nýrað en
ómskoðun er kjörrannsókn til að greina góðkynja
blöðrur. Ef sterkur gmnur er um krabbamein er
samkvæmt nýjustu rannsóknum mælt með að byrja á
að fá tölvusneiðmyndir af nýranu (mynd 6b) (8,18).
Fyrir fáeinum árum var mælt með slagæðamyndatöku
(angiography) (mynd 6a) sem næstu rannsókn á eftir
nýrnamynd en tölvusneiðmyndir hafa smám saman
ýtt slagæðamyndum til hliðar. Sömuleiðis er ekki
ástæða til að óma nýrað ef tölvusneiðmyndir sýna
óyggjandi framáillkynjaæxli ínýranu. Slagæðamynd
er þó rétt að gera ef kortleggja þarf æðakerfi nýrans,
t.d. ef grunur leikur á afbrigðilegu æðakerfi eða ef
aðeins á að fjarlægja hluta nýrans við aðgerð, t.d. hjá
sjúklingi með eitt nýra. Segulómun (MRI) er ekki
talin hafa kosti umfram tölvusneiðmyndir og
ábendingar fyrir notkun hennar í þessu sambandi eru
takmarkaðar enn sem komið er (8,19).
Mynd 6b. Tölvusneiðmynd af stóru nýrna-
frumukrabbameini í vinstra nýra.
LÆKNANEMINN 1 1994 47. árg.
17