Læknaneminn - 01.04.1994, Blaðsíða 174
hinna hefðbundnu skipta og kynntur sá möguleiki að
taka rannsóknarverkefni og valmánuði erlendis.
Sumarsamstarf stúdentaskiptanefndar og viðskipta-
(AIESEC) og verkfræðinema (IAESTE) var kynnt og
nokkrir læknanemar sögðu frá skiptinemareynslu
sinni. Vegna þess hve margir hættu við á síðustu
stundu árið áður var tekið upp nýtt kerfi með s.k.
tryggingagjaldi, sem fæst endurgreitt ef menn ljúka
dvölinni. Sambærilegur fundur fyrir næsta ár var
haldinn í sl. viku.
Síðastliðinnveturvarefnttil samkeppni um hönnun
á merki fyrir nefndina og var valin hugmynd Ellenar
Apalset. Sú hugmynd var útfærð frekar og nýtt merki
prentað á bréfsefni nefndarinnar.
Undanfarin ár hefur verið sendur út stuttur
spumingalisti til skiptinemanna og þeir látnir meta
dvölina hér. Síðastliðið haust var sá listi gerður ítarlegri
og útbúinn nýr listi fyrir íslensku læknanemana í
þeim tilgangi að afla upplýsinga um mismunandi
staði.
í mars sl. voru tveir fulltrúar sendir á
skiptaráðstefnu í Aþenu. Þar var gengið frá því að
hingað kæmu 24 skiptinemar, þar af 5 í
rannsóknarverkefni og í staðinn færu 18 manns út.
Hingað komu svo 17 nemar í hin hefðbundnu skipti,
5 í rannsóknarverkefni og auk þess þrír nemar í
verkefni á vegum einstakra lækna. Héðan fóra 15
manns, 5 höfðu hætt við að fara út, en tveimur plássum
var hægt að úthluta aftur.
I sumar kom í ljós að Þórdís Guðmundsdóttir
ætlaði sér að hætta í nefndinni og vantaði því hæfan
mann í hennar stað til að hafa yfíramsjón með
rannsóknarverkefnaskiptum næsta vetur. Mikilvægt
var að fá mann strax þar sem viðkomandi þyrfti að fara
á ráðstefnuna í Danmörku til að leggja drögin að starfí
næsta árs. Eftir umhugsun og leit fengum við Olaf Má
Bjömsson í lið með okkur. Hann gekk strax í verkið
og verða slík skipti að veraleika í fyrsta sinn næsta vor
eftir 2 ára undirbúningsvinnu. Erfiðlega hefur þó
gengið að fá kennara deildarinnar til að hanna verkefni
handa erlendum læknanemum þrátt fyrir að þessi mál
hafí verið kynnt á deildarfundi í vor, en útlit er fyrir
breytingu á því nú þar sem mikið hefur unnist á
undanfömum 2 mánuðum.
Aðalfúndur IFMSA var haldinn í Danmörku í
ágúst sl. og fóra þangað fjórir fulltrúar héðan, enda
mikill árangur af þeirri ráðstefnu. Þar má fyrst nefna
vinnuna varðandi rannsóknarverkefnin. I öðru lagi
höfðum við frumkvæði að því að koma á fót keppni um
besta sumarstarfið, með það fyrir augum að ýmis lönd
bæti sig hvað varðar skipulag. I þriðja lagi var hannaður
nýr spurningalisti fyrir skiptinemana og var okkar
spurningalisti ásamt sambærilegum hollenskum lista
notaður sem grannur. Einnig vorum við beðin að
kynna okkar sumarstarf sérstaklega þar sem það er
eitt það besta í heiminum.
Sumarstarfíð gekk vel í samvinnu við AIESEC
(viðskiptafræðinemar) og IAESTE (verkfræðinemar)
og var með svipuðu sniði og undanfarin surnur Að auki
var haldin alþjóðleg veisla í Viðey í júlí sem náði því
að komast í fréttir sjónvarps og blaða.
Ég kveð stúdentaskiptin eftir rúmlega 2 ára setu í
nefndinni og hlakka til að kynnast læknisfræðinámi
upp á nýtt. Þessi tími hefur verið viðburðaríkur, oft
erfíður en aldrei leiðinlegur og vil ég nota tækifærið ti 1
að þakka nefndarmönnum samstarfíð.
Helena Sveinsdóttir,
stúdentaskiptastjóri '92 - '93.
SKÝRSLA BS-NEFNDAR
BS-nefnd er nefnd á vegum Læknadeildar. í
henni eiga sæti þrír fulltrúar kennara og tveir fulltrúar
nemenda. Formaður nefndarinnar er Gunnar
Sigurðsson dósent. Annar fulltrúi nemenda skal vera
í eða hafa lokið B.S. námi og hinn skal vera fulltrúi 4.
ársinsvegnavísindaverkefnanna. Haustið 1992 voru
kennarar beðnir um að senda inn verkefni fyrir 4. árs
nema, viðbrögð vora góð og komu inn u.þ.b. 50
verkefni. Fjórðaársnemarvöldusíðanverkefnineftir
að dregið var í röð svipað og gert er i ráðningakerfinu.
Dagana 25.-26. maí var síðan haldin
rannsóknarráðstefna í Odda þar sem nemendur kynntu
verkefni sín. Þau höfðu yfírleitt verið vel unnin og
framsaga stúdenta var að sama skapi góð. A þessa
ágætu ráðstefnu skyggði þó léleg mæting læknanema
sjálfra. Sem dæmi um það er að við lok síðari dagsins
voru fleiri 5. árs nemar í salnum en af 4. ári. BS-
nefhd hefurþví ákveðið að herða viðvistarkröfur4. árs
nema á ráðstefnunni. Eitthvað var um að 4. árs
nemendur ætluðu að fá frest til að skila lokaritgerðum
sínum úr verkefnunum, BS-nefnd tók þegar fyrir það
og verður það svo í framtíðinni, þ.e. að lokadagur skal
standa (annars fall).
160
LÆKNANEMINN 1 1994 47. árg.