Læknaneminn - 01.04.1994, Blaðsíða 166
ÁRSSKÝRSLA FÉLAGS
LÆKNANEMA 1992-1993
Aðalfundur F.L. 16. okt. 1993
Aðalfundur Félags læknanema var haldinn þann
3. október 1992. Kosningu til stjórnar lyktaði á
eftirfarandi veg:
Formaður: GuðjónKarlsson
Ritari: Þorsteinn Gunnarsson
Gjaldkeri: Björn P. Sigurðsson
Form. Kennslumálanefndar: Helgi Birgisson
Form. Fræðslunefndar: Margrét Valdimarsdóttir
Stúdentaskiptastjóri: Helena Sveinsdóttir
Meðstjómendur: Hrólfur Brynjarsson og Jórunn
Valgarðsdóttir
Varamaður: Dagur B. Eggertsson
Stjórnarfundir voru haldnir reglulega hvern
miðvikudag, fundað varvíðsvegaríLæknagarði. Alls
voruhaldnir26fundirerstóðuaðmeðaltalií 1 klst.og
28mín= 2288 mínútur (38,8 klst.). Mætingvarmeð
ágætum.
Starfsemi félagsins var viðamikil, fastir liðir í
starfseminni líkt og svo oft áður voru fræðslumál,
ráðningarmál, útgáfustarfsemi, skemmtanir,
stúdentaskipti og kennslumál.
Hér á eftir verður fj allað um þau atriði er hæst bám
í starfi stjómar þetta starfsárið.
I. SAMSKIPTIVIÐ STÚDENTARÁÐ OG
ÖNNUR STÚDENTAFÉLÖG
1. Formannafundir vom haldnir mánaðarlega i
allanvetur. Komuþásaman formennnemendafélaga
innan H.I. ásamt fulltrúum stúdentaráðs. Á þeim
voru kynntar helstu framkvæmdir stúdentaráðs hverj u
sinni. Mikilltímifóríaðskipuleggjamótmælaaðgerðir
gegn niðurskurði til H.í., en erfitt er að meta árangur
af þeirri baráttu. Meðal nýjunga sem stúdentaráð
hefur staðið fyrir er stofnun nemendafyrirtækis en
þau mál eru skammt á veg komin innan læknadeildar.
Nú í haust voru stúdentaskiptasjóður og
félagsmálasjóður sameinaðir í einn sjóð og
úthlutunarreglum breytt, á þann veg að nú þarf að
sækja um hvert verkefni en fastagjald sem hefur verið
umtalsvert er að mestu fellt niður. Þetta hefur þá
þýðingu að formenn nefnda félagsins þurfa að sækja
um styrki til sjóðsins, fyrir það verkefni sem eru í
bígerð hverju sinni. Mikilvægt er aðþessu verði fylgt
fast eftir þar sem um töluverðar íjárhæðir er að ræða
fyrirfélagið.
2. Síðastliðið haust var stofnað Félag deilda- og
skorafélaga við H.Í., nokkur styrr stóð um stofnun
félagsins í upphafi, þar sem mörgum þótti nokkur
pólitísk lykt stafa af þvi. Þeirri lykt var svo blásið
burt er á leið veturinn og gekk F.L. í félagið skömmu
eftir áramót. Tilgangur félagsins er að stuðla að
samstarfi milli nemendafélaganna innan H.í. í þeim
tilgangi hafa formenn félagana hist reglulega í vetur
til skrafs og ráðagerða, nokkuð gagn og gaman hefur
verið af þessum samkomum. Starfsemi félagsins er
ekki fullmótuð enn sem komið er en ljóst þykir að það
eigi framtíðina fyrir sér.
II. HÚSNÆÐISMÁL LÆKNANEMA
1. Lesstofumál hafa verið með skikkanlegasta
hætti í vetur. Skömmu eftir áramót tókst að tryggja 6.
152
LÆKNANEMINN 1 1994 47. árg.