Læknaneminn - 01.04.1994, Blaðsíða 39
UM MEÐFERÐ VERKJA
í KJÖLEAR ILLKYNJA
SJÚKDÓMA
r
Sigurður Arnason
FORMÁLI
UNDANFARINN ÁRATUG hefur þekking á
verkjum og verkjameðferð, svo og annarri
einkennameðferð1, aukist mj ög samfara miki lli grósku
innan Hospicehreyfingarinnar (1) á Vesturlöndum.
I kjölfar þessa hefur þróast í nágrannalöndunum ný
sérgrein læknisfræðinnar sem nefnist á enskri tungu
palliative2 medicine. Hafa Bretar (2) farið þar fremstir
í flokki ásamt Kanadamönnum (3) og
Bandaríkjamönnum. Á árum áður hvarf líknin oft í
skugga lækninga og enn er það svo víða að virk
einkennameðferð víkur fyrir óraunsæjum
lækningaráformum. Hafa hjúkrunarfræðingar og
aðstoðarlæknar (4) því haft vandamál líknar fyrst og
fremst á herðum. Sérfræðingar læknisfræðinnar hafa
getað auðveldlega skotið sér undan t.d.
verkjavandamálum með því að láta þau í hendur
ofangreinds starfsfólks eða laumað vandanum til
heimilislækna. Og því nær sem dregur að dauðanum
þeim mun algengara verður að hinir/hinar valdameiri
læknar/stéttir hverfí afhólmi (5) vegna þess að óttinn
viðdauðann erbæðidjúpstæðurogalmennurogbirtist
í margvíslegum myndum (6). Ef til vill ræður þessi
ótti einhverju um það hversu kulnun er algeng meðal
þeirra stétta sem mest fást við sjúklinga með illkynja
sjúkdóma (7).
Markmið eftirfarandi greinar er að veita svolítið
yfírlit yfir verkjameðferð langvinnra verkja og mið
tekið af verkjum sjúklinga með illkynja sjúkdóma.
Byggir greinin að nokkru á fyrirlestri og grein (8) sem
ég skrifaði ásamt Robert G. Twycross3 fyrir fund
norrænna lungnakrabbameinslækna sem haldinn var
í Skotlandi haustið 1992.
I textanum er oft notaður boðháttur sagna og er það
gert til einföldunar byrjendum. Því fer þó fjarri að
verkjameðferð sé einleikur lækna eða annarra stétta.
Einkennameðferð öll og sérstaklega verkjameðferð
byggist á samvinnu - teymisvinnu (9), þar sem minnsta
teymið er sjúklingur og læknir/hjúkrunarfræðingur.
Fjölmarga getur þurft að kalla til svo sem prest,
svæfingarlækni, næringarráðgjafa, geðlækni,
^ E.: symptom control eða symptom therapy. Einnig nefntpalliative care eða palliative medicine. Á íslensku vantar
gott orð eða orðasambandyfirþessa sérgrein. Sumir kallaþetta líknarmeðferð.
^ Orðið er komið af latneska orðinu pallium. sem þýðir kápa eða skikkja. Orðið er skylt enska nafnorðinu fall (=haust)
og íslenska orðinu fallegur. Sagt er að meðferðin breiði ekki aðeinsyftr einkenni heldurylji einnig manneskjunni
sjálfri!
3 Robert G Twycross MA, DM, FRCP erprófessor í einkennameðferð (e. palliative medicine) við Sir Michael Sobell
House í Oxford á Englandi, en það er hospice sem er deild á sjúkrahúsi háskólans þar.
Höfundur er sérfrœðingur í krabbameinslækningum
og starfar á Landsspítala og í Heimahlynningu
Krabbameinsfélags Islands.
LÆKNANEMINN 1 1994 47. árg.
33