Læknaneminn - 01.04.1994, Side 91

Læknaneminn - 01.04.1994, Side 91
Mynd 1. Staðsetning og leiðni verkja vegna kransœðasjúdóma. Verkurinn byrjar oftast fremur hægt en fer jafnt og þétt versnandi, og sjúklingar með fyrri sögu um kransæðasjúkdómaeruoftbúnirað taka nítróglýcerín án árangurs. Sjúklingar með bráða kransæðastíflu eru gjarnan sárþjáðir og kaldsveittir við komu á bráðamóttöku. Andþyngsli og mæði vegna hjartabilunar í kjölfar kransæðastíflunnar eru algeng og sömuleiðis vagal erting með uppköstum. Við greiningu þessa sjúkdóms þarf eins og alltaf að hafa í huga fyrri sögu. Algengt er að sjúklingar með kransæðastíflu hafi haft hjartaöng áður og jafnvel fengið kransæðastíflu. Aldursjúklingshefurlíkasitt að segja við greininguna, en yfirleitt er þetta sjúkdómur miðaldra og eldra fólks. Spyrja þarf urn áhættuþætti eins og háþrýsting, blóðfítu og reykingar en meðal reykingamanna byrjar sjúkdómurinn að jafnaði 10 árum fyrr en hjá þeim sem ekki reykja. I-B. Hjartaöng (Angina pectoris) Staðsetning verks við hjartaöng er mjög svipuð og við kransæðastíflu, það er miðlægur verkur undir bringubeini eða þvert yfir brjóstið, oft meira vinstra megin. Verkinn leiðiroft út í handleggi, oftar þó í vinstri handlegg ölnarlægt og sömuleiðis upp í háls og kjálka og stundum milli herðablaða (mynd 1). Verkurinn er yfirleitt dreifður og sjúklingurnotarlófann eðahendinatil að staðsetja hann alveg eins og við kransæðastíflu. Sérkenni hans eru oft samaeðlisogverkirvegnakransæðastíflu en vægari. Fyrst og fremst sviði, misjafnlega sár, oft þrýstingur eða herpingurog andþyngsli fylgjaoft. Það sem er hins vegar dæmigert fyrir hj artaöng eru tengslin við áreynslu, bæði líkamlega og andlega. Sjúklingar fá verkinn meðan á áreynslu stendur og hann hverfur á 10-15 mínútum við hvíld. Oft eru einkennin verst við fyrstu áreynslu á morgnana eða í upphafí annarrar áreynslu. Einkenni erugjarnan verri eftirþungar máltíðir, og í íslenskri veðráttu er það mjög áberandi hve vindur og kuldi hafa slæm áhrif og framkalla gjarnan hjartaöng hjá sjúklingum. Dæmigert erhversu vel nítróglýcerín slær á hjartaöng og getur það oft hjálpað við greininguna. H vikul hjartaöng (angina pectoris instabilis) hefur verið skilgreind sem breytileg eða versnandi hjartaöng og hefur verri horfur í för með sér, enda táknar breyting á einkennum óstöðugt ástand. Verkir korna þá af mun rninna tilefni en venjulega og geta jafnvel komið i hvíld. Staðsetning og sérkenni þessara verkja er þó svipuð eins og við áreynsluangina og áhrif nitroglycerins þau sömu. Næturöng er einnig sérstakt form af hjartaöng, sem eins og nafnið bendir til kemur að nóttu til. Yfirleitt eru þetta sjúklingar með slæma áreynslubundna hjartaöng, en þess eru þó dæmi að sjúklingar fái fyrst og fremst næturverki. Gróft tekið má skipta næturöng í tvo undirflokka. Annars vegar angina sem kemur fljótlega eftir að sjúklingur leggst til hvíldar og getur bent til hjartabilunar og lagast verkurinn oft við það að setjast fram á rúmstokkinn. Hins vegar er það hjartaöng sem kemur síðari hluta nætur þegar sjúklingur byrjar að vakna af djúpum nætursvefni. Til er sérstök tegund hjartaangar (Prinzmetal- angina), sem kennd er við bandarískan lækni að nafni LÆKNANEMINN 1 1994 47. árg. 81
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.