Læknaneminn - 01.04.1994, Blaðsíða 97
þessa kvilla geta oft bent nákvæmlega með einum
fíngri á staðinn þar sem verkurinn er en nota ekki
lófann eða hendina til þess eins og sjúklingar með
kransæðasjúkdóma. Við þreifíngu er sjúklingur
undantekningalítið aumuráþeim stöðum sem verkimir
em. Þetta eru mjög algengir kvillar sem koma fyrir
í öllum aldurshópum, líka hjá sjúklingum með
kransæðasjúkdóma og getur því stundum verið erfitt
að greina í sundur hin mismunandi einkenni.
V. BRJÓSTVERKUR AF
SÁLRÆNUM TOGA
Brjóstverkur af sálrænum toga spunninn er
algengur. Þetta eru sjúklingar sem oft þjást af
langvarandi kvíða og/eða þunglyndi. Hræðsla við
sjúkdóma, sérstaklega hjartasjúkdóma, hefur þar
mikið að segj a og oft er saga um slæma hj artasjúkdóma
hjánánum ættingjum ogvinum. Staðsetningverks er
oftast vinstra megin í brjósti, oft beint yfir
hjartabroddi. Verkurinn er yfirleitt langvarandi og
batnar frekar en versnar við líkamlega áreynslu.
Stundum lýsa sjúklingar þessum verk eins og
snöggum stingverk sem stendur aðeins í nokkrar
sekúndur í hvert sinn. Samfara þessu eru gjaman
öndunartruflanir og algeng er sú lýsing sjúklinga að
þeireigi erfítt með að ná “djúpa andanum”. Oföndun
(hyperventilation) með dofa kringum munn og í
fíngrum er hluti af þessari sjúkdómsmynd. Þessir
sjúklingar eru stundum ofumæmir fyrir sínum eigin
hjartslætti sem þeir hlusta stöðugt eftir og hvert
einasta aukaslag getur virkað sem svipuhögg. Þessu
fylgir gjarnan mikil þreytutilfinning og úthaldsleysi
og vanlíðan fólks vegna þessa er oft mikil.
VI. BRJÓSTVERKUR VEGNA
SJÚKDÓMAÍ KVIÐARHOLI
Á samaháttogverkur vegnasjúkdómaíbrjóstholi
gehir leitt niður í kviðarhol geta sjúkdómar í kviðarholi,
sérstaklega efri hluta þess valdið verk sem leiðir upp
í brjósthol. Sársjúkdónrar í maga og skeifugörn eru
þar sennilega algengastir enda þótt þeir valdi oftast
staðbundnum verk í uppmagálssvæði (epigastrium)
sem tengist máltíðum. Þessi verkur getur leitt upp í
framanvert brjósthol og ef bakflæði er upp í vélinda
kemur brjóstsviði sem áður er lýst.
Steinar í gallblöðru og bráð gallblöðrubólga valda
sárum verk hægra megin í uppmagálssvæði sem getur
leitt aftur undir hægra herðablað eða upp í hægri öxl.
Þessum verk sem gjarnan er bylgjuverkur fylgja
gjarnan uppköst og oft er fyrri saga um svipuð
verkjaköst. Þá geturverkur frá bráðri briskirtilsbólgu
sem y fírleitt er staðsettur í miðj u uppmagálssvæði leitt
upp í brjóstholið undir bringubein og aftur í bak á
milli herðablaða. Staðsetning og leiðni minnir stundum
á einkenni við flysjun á ósæð. Uppköst eru hins vegar
áberandi hjá fólki með bráða briskirtilsbólgu, og verkur
við bráða briskirtilsbólgu lagast oft við að halla sér
fram.
Einkenni frá ristli geta leitt upp í brjósthol,
sérstaklega frá þverristli (colon transversum).
Stundum getur orðið tímabundin rennslishindrun í
ristli við vinstri ristilbugðu (flexura lienalis) með
þenslu og verk sem gjarnan leiðir upp í brjósthol
vinstra megin. Algengast er þetta hjá sjúklingum
með sögu um hægðatregðu og aðrar truflanir á
ristilstarfsemi.
NIÐURLAG
Eins og sagt var í inngangi þessarar greinar eru
einkenni sjúklings eitt það mikilvægasta við greiningu
sjúkdóma. Skoðun sjúklings ogrannsóknir fara síðan
eftir því hvað til greina kemur sem sjúkdómsgreining
eftir að talað hefur verið við hann. Hæfni góðs læknis
til að komast að réttri sjúkdómsgreinigu byggist á
hæfileika hans til að notfæra sér alla þessa þætti og
tengja þá saman.
Eg hef að lokurn tekið saman í yfirlitstöflu helstu
sjúkdóma, sem valda brjóstverk og einkenni þeirra.
Slík tafla getur þó aldrei verið tæmandi frekar en stutt
yfirlitsgrein. Hún ætti þó að geta verið til hjálpar þeim
sem eru að hefja störf á sjúkrahúsum eða
heilsugæslustöðvum. Eins og frarn kemur er að mörgu
að hyggja og margt sem verður aldrei af bókum lært
heldur reynslunni einni saman. 0
HEIMILDIR
1. Braunwald E. Heart disease. Atextbookof
cardiovascular medicine. Philadelphia: W.B. Saunders
Company 1992.
2. Hurst JW. The Heart. New York: Mc Graw- Hill
Infonnation Services Company 1990.
3. AlexanderJK. Chestpain: How serious is it. Hosp
Med 1987; 23:24-41 & 78-97.
4. Chatterjee K. Cardiology. Philadelphia: J.B.
Lippincott Company 1991.
LÆKNANEMINN 1 1994 47. árg.
87