Læknaneminn - 01.04.1994, Side 142

Læknaneminn - 01.04.1994, Side 142
þar kemur ekkert í staðinn fyrir þjálfun. Hafa þó í huga að það nægir að brúnir falli vel saman og að sárið grær líka á milli spora. Ef ákveðin landamerki eru á skurðinum s.s. hak er oft auðveldast að byrja á að fá slíkttil að falla rétt. í húð ernotað Ethilon, saumur sem ekki eyðist (einnig oft notaður með í sinasaum). Af saumum sem eyðast er helst notað Vicryl (hægt að treysta að haldi í 1/2 mán.) og PDS (heldur í 6 vikur). Rétt er að taka saurna úr andliti eftir 5-7 daga, annarstaðar eftir 10-14 daga, getur þurft allt að 3 vikum (t.d. á "extensor" yfirborði liða). Bitsár eru alltaf verulega menguð af munnflóru viðkomandi og meginreglan er sú að sauma ekki slík sár, setja á sýklalyf. Efsárin eru verulega gapandi og líklegt að verulegt lýti verði af öri má freistast til að draga brúnirnar laust saman með saumaskap eftir góða hreinsun ef viðkomandi óskar þess, það væri hinsvegar rangt að sauma eingöngu til að þóknast fegurðarsmekk læknisins. Sár í munnholi vilja oft líta fremur illa út meðan þau eru fersk, mikil bólga umhverfís. Gróa hinsvegar fljótt og vel í flestum tilfellum án þess að þau séu saumuð. Því í lagi að sitja á sérnema að gapi því meira eða að útlit sé fyrir að flipar falli ekki eðlilega. Þá oftast rétt að sauma í djúpið með t.d. Vicryl. Skurðir sem ganga gegnum varalínu er rétt (af útlitsástæðum) að sauma þannig að línan falli eðlilega. UMBÚÐIR Umbúðir geta verið mjög mismunandi, allt frá plástri yfir í gips. Því nauðsynlegt að gera sér grein fyrir til hvers þær eru lagðar. Markmiðið oft það að loka tiltölulega hreint og þurrt sár frá óhreinindum, halda jöfnum hita á því og draga úr líkum á utanaðkomandiáverkumáþað. Fremurþunnarsterilar umbúðir ættu að duga. 1 öðrum tilfellum getur verið um töluverðar blæðingar að ræða sem venjulegur saumaskapur dugði ekki á. Getur þá verið rétt að leggja þrýstingsumbúðir (þykkari vöndul að grisjum vafinn með teygjubindi) a.m.k. fyrsta sólarhringinn. Ef búast má við að sárið vessi verulega þarf umbúðir til að taka við því. Einnig þarf að minnka líkur á að umbúðir festist í sárinu (t.d. feitar grisjur eða rakar saltvatnsgrisjur). Ef sár liggja yfir liðum þannig að það togi verulega í sauma eða húðin af öðrum ástæðum er léleg er oft þörf á að immobilisera liðinn t.d. í gipsi meðan sárið grær. Þegarum dýpri skaðahefur verið að ræða s.s. sinaslit er ekki nóg bara að sauma sinina og húðina heldur þarf að meðhöndla í gipsi í mun lengri tímaenþaðtekurhúðinaaðgróa. Þaðerþví auðséðað ými slegt þarf að hafa í huga þegar umbúðir eru lagðar. EFTIRLIT Oftast er ekkert að því að eftirláta sjúklingnum sjálfumaðskiptaáeðaljarlægjaumbúðirafminniháttar sárum. Þeirleitiþáafturefástæðaertil. Eftakaþarf sauma er sjaldnast ástæða til endurmats fyrr en við saumatöku. Ýmsar ástæður geta hinsvegar legið til grundvallar þéttara endurmats. Má þar nefna þéttar skiptingar á zinkplástri eins og rakið er framar (sjúklingur sjálfur oft reyndar fullfær að sinna þeim sjálfur), nauðsyn á að drenera út sýkt sár ofl. Það er engin leið að gefa nokkra algilda reglu um hvenær er þörf og hvenær ekki á endurkomu aðra en þá að hún verður að þjóna einhverjum tilgangi. GRÓANDI Gróandaferlinum má skipta í þrjá þætti: 1) Bólga (niðurbrot-hreinsun) 2-3 dagar. Hefst við áverkann, miðar að þvi að losa líkamann við dauðar frumur og vef, varna sýkingu og draga úr blæðingu. 2) Nýmyndun (uppbygging) nýjar háræðar og aukin virkni fibroblasta sem leggja niður kollagen, mynda saman granulationsvef. Epithel skríður yfir sárið og örið myndast. 12-14 dagar. 3) Þroski - öriðþroskast burt, umröðun ákollageni, styrkur eykst allt að 12-18 mánuðir. Gróandi er flókið fyrirbæri, endar alltaf með öri. Ef staðið er sómasamlega að meðferð þá er árangur fyrst og fremst undir sjúkling kominn. Gróandi sára er misjafn hjá einstaklingum. Skiptir þar máli hreinleiki sársins og hve vel var staðið að hreinsun. Síðan hafa einstakl ingsbundn i r þætti r þýðingu. Kemur þar inn aldur viðkomandi, virkni ónæmiskerfis, næringarástand, blóðrás, lyf (sterar, cýtótoxísk), sjúkdómar (D.M., sýkingar, cancer) og fleira. Þessir síðasttöldu þættir eru þess eðlis að við getum lítil áhrif haft á þá á þeim tíma sem það tekur venjulegt sár að gróa. 0 Þakkir: Ég vil þakka Magnúsi Páli Albertssyni, handarskurðlækni, fyrir yfirlestur og ráðleggingar. 128 LÆKNANEMINN 1 1994 47. árg.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.