Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 16
14
Guðm. Finnbogason
Skírnir
stafaði af einangruninni, og sá metnaður að verða ekki
eftirbátar annarra, hefir og verið íslendingum hvöt til
að kynna sér sem bezt menningu annarra þjóða og læra
af þeim það, sem að haldi mátti koma, og raunar hefir
þessi uggur einangursins alltaf búið í fslendingum og
beint athygli þeirra út á við, hvenær sem færi gafst til
að fregna eitthvað frá öðrum löndum. Fyrsti Norðurlanda-
búi, sem vitað er að stundað hafi nám í Frakklandi, var
íslendingur. Af heilbrigðu jafnvægi fornfestu og frum-
kvæðis spratt hin forna íslenzka menning. Hún var sköp-
uð af höfðingjum handa höfðingjum og höfðingsskapur-
inn setti mót sitt á mál og hugsun.
Á 12. og 13. öld sköpuðu íslendingar bókmenntir, sem
heiminum hefir orðið starsýnt á og er enn. Undirrót þeirra
er ættarmetnaður höfðingjanna, að varðveita og ávaxta
það, sem þeir vissu um fræga forfeður sína og þau ljóð
og sagnir, lífsspeki og trú, er þeir fluttu með sér til hins
nýja lands, minningarnar um landnámið og þá atburði,
er gerðust í hinu þróttmikla þjóðlífi, meðan þjóðin var
að leita sér jafnvægis í hinu nýja landi, þróun kristninn-
ar í landinu, eftir að kristin trú var lögleidd á alþingi
árið 1000, og loks hinar skæðu deilur, er urðu lýðveldinu
að falli. Allt þetta færðu þeir í letur, en jafnframt sögu
Noregs, Færeyja, Orkneyja og að nokkru leyti Danmerkur
og Svíþjóðar. Þeir byggðu Grænland og fundu þaðan Ame-
ríku og skrifuðu um hvort tveggja. Skáldskapur hafði
alltaf sérstaklega verið íþrótt þeirra, íslenzk skáld dvöldu
við hirðir erlendra konunga og höfðingja og kváðu um
þá. Þau fóru víða um lönd, svo að það kemur ekki ókunn-
uglega fyrir, er eitt þeirra kveður: „Lítk of öxl til Krít-
ar“. íslenzk bragfræði var tekin til nákvæmrar meðferð-
ar og skarpleg rannsókn gerð á hljóðum móðurmálsins að
hætti nútíðarhljóðfræðinga; það var skrifað um stjörnu-
athuganir og rím og landafræði, og jafnframt sýnir fjöldi
þýðinga á erlendum ritum, kristnum og heiðnum, að ís-
lendingar reyndu að fylgjast með í sem flestum greinum