Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 134
132
Hallgrímur Hallgrímsson
Skírnir
spillingar í þjóðfélaginu. Víðátta ríkisins hefir líka vald-
ið því, að stjórninni hefir gengið erfitt að halda-uppi lög-
um og rétti. Ræningjar, bæði á sjó og landi, hafa lengi
verið plága fyrir þjóðina, og þá ekki síður fyrir vestræna
menn, er þar hafa rekið verzlun eða aðra atvinnu.
Stéttaskiptingar hefir jafnan gætt nokkuð í Kína, en
þó miklu minna en í Japan. Yfirleitt má segja, að allur
þorri þjóðarinnar sé smábændur eða handverksmenn og
verzlunarmenn í borgunum. Aftur á móti eru þar nálega
engin stór verzlunarfyrirtæki, og vélaiðnaður nútímans
hefir aldrei rutt sér til rúms í Kína. Siglingamenn eru
Kínverjar engir og eiga fátt skipa. Utanríkisverzlunin
hefir jafnan verið að mestu í höndum annarra þjóða, en í
smáverzlun standa hvítir menn þeim ekki á sporði. Sökum
sparsemi sinnar og sparneytni geta Kínverjar, ekki síður
en Japanar, bolað út verkamönnum vestrænna þjóða.
Það má yfirleitt segja, að á sviði hinnar verklegu menn-
ingar hafi Kínverjar alls staðar dregizt aftur úr. Menn-
ingin, sem einkum einkennir þá, er fyrst og fremst and-
leg og trúarleg. Verður því að fara um hana nokkrum orð-
um, enda bregður hún Ijósi yfir hið einkennilega stjórn-
málaástand í Austur-Asíu.
Fyrir fáar þjóðir hafa trúarbrögðin haft jafnmikla
þýðingu og Kínverja. Feðradýrkunin er hjá þeim eins og
Japönum einn veigamesti þátturinn. Hver maður heiðrar
forfeður sína og færir þeim fórnir. Allir, sem ráð hafa á,
láta búa út lítið herbergi og setja þar te og hrísgrjón
handa öndum hinna framliðnu, svo að þeir líði ekki nauð
hinum megin. Fátt óttast Kínverjar meira en að deyja
sonarlausir, því að þá er enginn til að sjá um fórnirnar.
Þeir hafa djúpa virðingu fyrir friðhelgi grafarinnar, og
ef þeir deyja utanlands, gera þeir jafnan ráðstafanir til
þess að líkið verði flutt heim til föðurlandsins. Þessi ótti
við að deyja sonarlaus hefir átt mikinn þátt í því, að gera
Kínverja að lélegum hermönnum. Ungir menn og barn-
lausir eru tregir til að hætta lífi sínu.
Búddhatrú í ýmsum myndum er mjög útbreidd í Kína,