Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 75
Skírnir
Vísindi, heilbrigð skynsemi og velsæmi
73
brautinni, sem bendir á, að alfa-ögnin hafi rekizt á kjarna
einnar af sameindum lofttegundarinnar. Ef til vill verður
þá ljósmyndin gefin út á prenti — hún kann að vekja um-
ræður vísindamanna, er verja til þeirra þúsundum vinnu-
stunda —, einn þeirra kann að tefjast svo við þær, að
hann missi af járnbrautarlest, þar sem hann hefði að
öðrum kosti farizt af slysi. Óteljandi slík dæmi mætti
nefna, en þau sýna, að eitt einstakt ófyrirsjáanlegt
skammt-atvik getur breytt rás mannkynssögunnar.
Þegar vökvi kólnar og verður að kristöllum, myndast
kjarnar eða kristöllunar-miðstöðvar, sem verða að eiga
upptök sín í frumeindaatburðum. Sjálfkrafa myndun
slíkra kjarna verður oft af hendingu. Á stöð einni við
Lake George, að vetrarlagi, hefi ég oft séð vatn í fötu
ófrosið að morgni, þó að hún hefði staðið í herbergi þar
sem hitastigið var langt fyrir neðan frostmark, en vatnið
varð að krapi samstundis og fatan var tekin upp.
Ólíusætu (glycerine) þekkja menn almennt sem seigan
vökva, jafnvel við lágt hitastig. En þegar kristallar loks
hafa myndazt, þá bráðna þeir aðeins við 17,8° C. Ef lítill
kristall af þessu tagi er látinn í hreina olíusætu við hita-
stig undir 17,8° C., harðnar allur vökvinn smám saman.
I Schenectady hafði ég heilan vetur margar litlar olíu-
sætuflöskur utandyra, og ég hafði lægri endann á tilrauna-
glösum með olíusætu í fljótandi lofti dögum saman, en
aldrei mynduðust kristallar. A. C. Langmuir, bróðir minn,
heimsótti olíusætuhreinsunarstöð í Kanada, er hafði starf-
að í mörg ár og aldrei komizt í kast við kristallaða olíu-
sætu. En einn vetur gerðist það allt í einu, að pípurnar, er
veittu olíusætunni frá einni vél til annarrar, frusu, og var
þó ekkert óvenjulega kalt. Öll verksmiðjan og jafnvel ryk-
ið á gólfinu varð mengað kjörnum, og þó að hægt væri í
bili að losa einhvern hluta verksmiðjunnar við kristalla,
með því að hita hann yfir 17,8° C., þá varð sú raunin á,
að hvar sem hitastigið varð minna en 17,8°, fóru kristall-
ar að myndast. Varð að loka allri verksmiðjunni mánuð-
um saman, þangað til hitinn úti var orðinn meiri en 17,8°.