Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 123
Skírnir
Ræðismenn
121
skal hann hafa aðgang að því, og honum skal vera heimilt
að athuga og staðfesta skipsskjöl, ef þörf krefur, við komu
og brottför slíkra skipa. Honum ber að fylgjast vel með
öllum siglingareglum, sem gilda á staðnum, og greiða
fyrir og leiðbeina skipstjórum, ef þeir æskja aðstoðar
hans. Sama er að segja um reglur viðvíkjandi vitum, hafn-
armálum, sóttvörnum og fleiru því um líku. Hann gefur
skipum bráðabirgðaþjóðernisskírteini, ef á þarf að halda,
og gerir út um deilur (til bráðabirgða), sem upp kunna
að rísa milli skipstjóra og skipverja, heldur sjópróf og
tekur sjóferðaskýrslur. Þá aðstoðar hann sjómenn, sem
eru í vanda staddir. Ef sjómenn verða veikir, annast hann
um læknishjálp og sjúkrahúsvist fyrir þá, og andist þeir,
sér hann um greftrun þeirra og heimsendingu eigna
þeirra. Enn fremur sér hann um heimsendingu sjómanna,
sem hafa lent í skipreika eða í neyð af öðrum ástæðum.
Séu þeir févana, reynir hann að veita þeim einhverja úr-
lausn líka.
Þriðji aðalþátturinn í starfsemi ræðismanna er vernd
og aðstoð við ríkisborgara heimalandsins, og er þar einn-
ig um allþýðingarmikinn þátt í starfi þeirra að ræða.
Ræðismaður tekur við bréfum og símskeytum og geymir
þar til þau eru sótt. Hann geymir og fé manna, útborgar
peninga og styrki, og sendir peninga heim fyrir fólk, sem
þess óskar. Þá gefur hann út alls konar vottorð, áritar
skjöl og staðfestir undirskriftir manna.
Meðal þýðingarmeiri starfa af þessu tagi er útgáfa
vegabréfa og staðfestingaráritanir á vegabréf erlendra
borgara. Er hér oft um vandasöm störf að ræða, því að
vegabréfsumsækjandi verður alltaf að geta sannað rétt
sinn til að fá útgefið vegabréf, en reglurnar um ríkisborg-
ararétt eru yfirleitt flóknar og erfiðar viðureignar. And-
ist íslenzkur ríkisborgari erlendis, er það eitt af hlutverk-
um ræðismanns að gæta hagsmuna búsins og erfingjanna
í heimalandinu. Ef borgarar heimalandsins sæta ákæru
fyrir afbrot, ber ræðismanninum að veita þeim aðstoð, og
reynist ákæran á rökum reist, þá að minnsta kosti að sjá