Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 29
Skírnir
Goðorð í Rangárþingi
27
Ketill örriði, bræðrungur hans, bjó á Völlum ytri. Ásleif,
dóttir Þorgilsar Þorsteinssonar í Lunansholti, var kona
Ketils einhenda; má því ætla, að hann hafi verið tví- eða
jafnvel þrígiftur. Þorgeir, sonur Gunnsteins berserkja-
bana, átti Þórunni hina auðgu, dóttur Ketils einhenda, og
Flosi Þorbjarnarson átti Þórdísi hina miklu, dóttur Þor-
geirs og Þórunnar. Þá er þess getið, að Ormur auðgi hafi
tekið land að ráði Ketils einhenda og búið í Húsagarði, og
að Þorsteinn tjaldstæðingur hafi numið land.að ráði Flosa
og búið í Skarði eystra, en Þórunn, móðursystir Þorsteins,
nam Þórunnarhálsa (líklega hjá Næfurholti). Hér hefir
því búið margt tengda- og vinafólk, svo að Flosi, ef hann
var goði, gat haft mikinn styrk úr nágrenni sínu.
Hjá Flagbjarnarholti (Flagveltu) á Landi er hæð, sem
kölluð er Þingholt, og eru hjá henni nokkrar búðatóftir,
sem sýna, að hér hefir verið haldið þing fyrrum.8) Þetta
virðist bera vitni um, að í þessum hluta Rangárþings hafi
búið goði og átt hér þingmenn. Ennfremur verður það
sennilegt, að fyrsti goðinn hér hafi verið Flosi Þorbjarn-
arson, þegar við gætum þess, að einn af afkomendum hans
fer með þetta goðorð á seinni hluta tólftu aldar. Dóttir
Flosa hét Ásný, og er maður hennar í Hauksbók nefndur
Þorgeir. Dóttir Ásnýjar var Þuríður, sem Valla-Brandur,
sonur Orms auðga í Húsagarði, átti. Hann reisti fyrst bú
á Völlum og frá honum eru komnir Vallverjar, segir Land-
náma. Sonur Valla-Brands var Flosi, faðir Kolbeins, föð-
ur Guðrúnar, konu Sæmundar fróða. Þetta hefir þannig
orðið erfðagoðorð meðal Oddaverja, því að Páll Jónsson,
síðar biskup, fer með það á seinni hluta tólftu aldar, að
því er virðist að föður sínum lifandi.9) Loftur Pálsson
biskupsson erfði það, en varð að láta það af hendi við Þor-
vald Gissursson í Hruna eftir víg Bjarnar Þorvaldssonar
á Breiðabólsstað. Þá flutti Ketill Þorláksson, tengdasonur
Þorvalds, að Skarði og hefir tekið við goðorðinu. En
nokkru síðar settist Andrés Sæmundsson Oddaverji að á
Skarði, og hefir þá hann og synir hans farið með goðorð-
ið, en hvort þeir hafa átt það eða farið með það í umboði