Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 71
Skírnir
Vísindi, heilbrigð skynsemi og velsæmi
69
rafmagnsverkanir séu milli frumeinda þeirra. Hver flatar-
málsfræðingur gerir sér í huganum fyrirmynd þríhyrn-
ings, er hann hugsar um hann. Gert er ráð fyrir, að línur
þær, er takmarka þríhyrninginn, hafi enga breidd. Með
öðrum orðum, þær hafa enga eiginleika aðra en þá, sem
vér sérstaklega viljum virða fyrir oss. Flest lögmál eðlis-
fræðinnar eru sett fram með stærðfræðitáknum, en jöfn-
ur stærðfræðinnar eru sjálfar eins konar fyrirmyndir.
Vér teljum eða gerum ráð fyrir, að einhver samsvaran sé
milli þeirra hluta, er vér mælum, og táknanna, sem vér
notum í jöfnunum, og þegar vér svo höfum leyst jöfnurn-
ar og fengið nýtt hlutfall, þá athugum vér, hvort vér get-
um fundið svipaða samsvörun milli hins nýja hlutfalls
og þeirrar niðurstöðu, er tilraunin gaf. Ef oss tekst þetta,
þá höfum vér sannað mátt jafnanna til að segja fyrir
óorðna hluti.
Aðaleinkenni fyrirmyndar er það, að hún á í ákveðnum
atriðum að líkjast því, sem vér erum að fást við. Af því
ætti að vera auðsætt, að nálega hver kenning felur í sér
mörg sjálfvalin atriði og er ýmsum takmörkum bundin
vegna þess, sem vér tókum ekki til greina, er vér mynduð-
um kenninguna eða gerðum oss fyrirmyndina.
Bylting hefir orðið í skoðunarháttum eðlisfræðinga, og
hófst hún með afstæðiskenningu Einsteins og skammta-
kenningu Plancks. Merkasta atriði hennar er ef til vill
það, að vísindamennirnir eru hættir að trúa því, að orð
eða hugtök hafi nokkra algilda merkingu. Þeir fást ekki
oft við spurningu um tilveru, þeir vita ekki, hvað í þeirri
spurningu felst. „Er frumeind til í raun og veru?“ Skil-
greining frumeindar er aðeins að nokkru leyti gefin í
orðabókum. Hin sanna merking orðsins er öll sú þekking,
sem þeir vísindamenn, er sérstaka stund hafa lagt á þetta
efni, hafa á því. Engum einum þeirra hefir verið heimilað
að gera nákvæma skilgreiningu. Vér getum ekki heldur
verið vissir um, hvað orðin „að vera til“ merkja. Slíkar
spurningar eru að miklu leyti háspekilegar, og vísinda-
menn hafa nú á tímum yfirleitt ekki áhuga á þeim. Bridg-