Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 198
196
Ritfregnir
Skírnir
girnist, og bókakaup frá Evrópu truflazt sakir stríðsins. í þessu
bindi eru aðallega bækur, sem út hafa komið síðustu 15 árin, og
auk þess nokkur rit í Cornell háskólabókasafninu utan Fiskesafns.
Þá hefir höf. innlimað í þetta bindi rit, sem voru í viðbót við höf-
undaskrá fyrsta bindis, bls. 663—669, því að flestum sést yfir slíka
viðauka, er þeir slá upp í bókum.
Þegar fyrsta bindið af skrá þessari kom út, 1914, skrifaði dr.
Páll Eggert Olason, sem þá var skrásetjari Landsbókasafnsins og
manna bezt að sér í íslenzkri bókfræði, ritdóm um það í Skírni
(bls. 422—428). Segir hann þar meðal annars:
„Það er skjótast af að segja, að þetta rit er hið mesta stórvirki,
sem innt hefir verið af höndum i íslenzkri bókfræði fram á þenna
dag. Það má teljast ærið æfistarf einum manni að hafa leyst af
höndum eitt slíkt verk sem þetta. Og er þó með enn meiri fádæm-
um, með hvílíkri vandvirkni og vísindalegri nákvæmni verkið er unn-
ið og útgefið. ... Þar eru taldir upp höfundar með fæðingar- og
dauðaári þeirra, sem íslenzkir eru, að svo miklu leyti sem vitað er,
og rit þeirra með fullum titlum í stafrofsröð, en jafnframt fylgja
skýringargreinir í smáa-stýl nálega hverju riti. Síðast í bókinni er
efnisskrá, glögg og skýr, er færir til höfuðtitla bókanna".
Þessi orð eiga jafnt við þau tvö bindi verksins, sem síðan eru
komin, og það gagn, sem próf. Halldór Hermannsson hefir unnið
íslenzkri bókfræði, er ómetanlegt öllum þeim, sem íslenzk fræði
stunda. Verk hans hafa, eins og ég hefi sagt á öðrum stað, verið
„eins konar ljósvarpa íslenzkrar bókfræði út um allan heim“. Og
það er mikið lán, að hans hefir notið við meðan Landsbókasafn
Islands hefir af ýmsum ástæðum ekki orkað að láta semja og gefa
út altæka íslenzka bókfræði, þó að vonandi sé, að það verk verði
hafið, áður en langt um líður. En til þess þarf meira en margir
hyggja. Islands er svo víða getið í erlendum ritum, að til þess að
finna það allt nægir ekki minna en beztu bókasöfn stórþjóðanna.
En bókfræðirit próf. Halldórs Hermannssonar eru sá leiðarvísir og
fyrirmynd, er seint mun fyrnast. G. F.
Island í myndum. Through Iceland with a camera. Prentað Og
gefið út af ísafoldarprentsmiðju hf. Rvík 1943.
Isafoldarprentsmiðja hefir unnið þarft vei'k og þakkarvert með
því að hefjast handa og gefa út hverja bókina af annarri með úr-
valsmyndum af landi voi'u og þjóð. Fyrsta bókin, ísland, Ijósmyndir
af landi og þjóð', kom út 1938. Næsta ár birtist ný útgáfa af henni,
aukin og bi'eytt. Síðar komu út 100 íslenzkar myndir, valdar úr fyrri
bókinni. Seldust báðar þessar bækur á skömmum tíma, og sýnir það
þörfina. Og nú kemur þessi nýja bók og tekur hinum fram. Hefir
verið gætt sem mestrar vandfýsni um valið og reynt að fá góðar